Tónlist

Bein útsending: Páska­ball heima í stofu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Biggi Sævars og ballhljómsveitin hans bjóða á páskaball heima í stofu í kvöld.
Biggi Sævars og ballhljómsveitin hans bjóða á páskaball heima í stofu í kvöld.

Biggi Sævars og ballhljómsveitin hans henda í páskaball í kvöld, páskadag, klukkan 22. Vegna samkomubannsins verða auðvitað engir áhorfendur í salnum en verður ballið sent út í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir á kerfum Vodafone og Símans.

Hægt er að biðja um óskalög í athugasemdum hér fyrir neðan bæði fyrir tónleika og á meðan þeim stendur og mun bandið leika eins mörg óskalög og tíminn leyfir.

Biggi er þekktastur fyrir að hafa skemmt fólki sem einn vinsælasti trúbador og skemmtikraftur landsins. Með honum í kvöld verða sannkallaðar sleggjur úr tónlistarbransanum. Magnús Hafdal sér um gítar og bakraddir, Hanni Bach sér um að trommurnar, Baldur Kristjánsson verður á bassa og svo er það Gunnar Hilmarsson sem leikur á gítar. Útsendingin er send úr samkomusal Vídalínskirkju af Hafdal framleiðslu.

Tilgangurinn með þessu er að leyfa landsmönnum að upplifa stemninguna af skemmtilegu páskaballi þrátt fyrir gildandi takmarkanir og verður því hægt að dansa og syngja með heima í stofu. 

Strákarnir byrja að spila á slaginu klukkan 22. Tekið verða skemmtileg lög úr öllum áttum og aldrei að vita nema einn leynigestur láti sjá sig og taki lagið með strákunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.