Rólegheitaveður fram að helgi Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2020 07:19 Spákortið fyrir hádegið. Sólin lætur sjá sig. Veðurstofan
Veðurstofan spáir rólegheitaveðri þar sem verður úrkomulítið en svalt, fram á föstudaginn langa. Spáð er norðvestan 8 til 15 metrum á sekúndu og dálitlum éljum norðaustanlands framan af degi, en annars hægum vindum og yfirleitt léttskýjuðu. Á föstudaginn mun svo hvessa úr austri með rigningu eða slyddu á sunnanverðu landinu og heldur hlýna. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að útlit sé fyrir skammvinna norðaustanátt og kólnandi veðri á laugardaginn, en síðan snúist í vaxandi suðvestanátt með hlýnandi veðri, en vætu sunnan- og vestanlands. Yfirlit: Einhver vetrarfærð er í flestum landshlutum en þó síst á Austurlandi. Upplýsingasíminn 1777 er opinn kl. 07:30 - 22:00. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) April 8, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (skírdagur): Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað með köflum og vægt frost, en 8-13 m/s, smá skúrir og hiti að 5 stigum með suðurströndinni. Á föstudag (föstudagurinn langi): Gengur í suðaustan 10-15 m/s með rigningu eða slyddu og hiti 1 til 5 stig sunnanlands, en annars hægir vindar, bjartviðri og hiti við frostmark. Á laugardag: Útlit fyrir skammvinna norðaustanátt með rigningu eða slyddu öðru hvoru, en þurrviðri S- og V-lands. Kólnandi veður í bili. Á sunnudag (páskadagur): Gengur í sunnan- og suðvestanátt og hlýnar í veðri, en skýjað eystra og svalt í veðri. Á mánudag (annar í páskum) og þriðjudag: Útlit fyrir allhvassa suðvestanátt með vætu og hlýindum, en þurrviðri NA til.
Veður Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Tillaga um að fækka varaforsetum felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Sjá meira