Starfandi forseti og æðsti herforingi Alsír látinn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. desember 2019 12:12 Ahmed Gaid Salah tók við forsetaembættinu þegar Abdelaziz Bouteflika steig til hliðar eftir 20 ár við valdastól. getty/ Billal Bensalem
Alsírski hershöfðinginn Ahmed Gaid Salah, sem er þekktur fyrir að hafa hvatt fyrrverandi forseta Alsír, Abdelaziz Bouteflika að segja af sér, er látinn 79 ára að aldri. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins. Salah var einn síðasti eftirlifandi hermannanna sem börðust í sjálfstæðisstríðinu við Frakka, sem stóð yfir 1954 til 1962, og sat enn við valdastól. Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar um dauða hans. Bouteflika, fyrrverandi forseti Alsír, hafði setið sem forseti frá 1999 þar til í apríl á þessu ári eftir fjöldamótmæli og tók Salah við sem forseti tímabundið af honum. Stjórnarandstaðan var mjög mótfallin þessum valdaskiptum og hefur krafist þess að allir þeir sem voru valdamenn í tíð Bouteflika segi af sér. Hershöfðinginn Said Chengriha hefur tekið við sem starfandi forseti og hefur þriggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir. Salah var einn aðalskipuleggjandi forsetakosninganna sem haldnar voru 11. desember síðastliðinn en stjórnarandstaðan sniðgekk. Hann lýsti því yfir að ef kosningarnar yrðu ekki haldnar myndi landið leysast upp í óreiðu. Fimm frambjóðendur börðust um embættið í kosningunum en þeir voru allir nánir Bouteflika. Abdelmadjid Tebboune, fyrrverandi starfsmaður í opinberri þjónustu, bar sigur úr bítum en hann hefur á samfélagsmiðlum verið kallaður „hinn útvaldi“ vegna náins sambands við Salah.
Alsír Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira