Lífið

Pottasprenging hjá Evu og Selmu í Ísskápastríði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heldur betur skrautlegt atvik.
Heldur betur skrautlegt atvik.
Ísskápastríðið var á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldið og mættu tveir skemmtilegir keppendur til leiks.

Um var að ræða Selmu Björnsdóttur og Jóhann Gunnar Arnarsson sem bæði verða dómarar í annarri seríu af Allir geta dansað sem hefja göngu sína í þessum mánuði á Stöð 2.

Akureyringarnir Guðmundur Benediktsson og Jóhann Gunnar voru saman í liði og Eva Laufey og Selma mynduðu teymi.

Þegar liðin matreiddu forréttinn kom upp mjög svo áhugavert augnablik þegar Selma kom potti fyrir ofan í vaski.

Potturinn hafði verið á hellunni og því heitur. Úr varð sprenging og skvettist vökvinn upp í loft. Heldur betur athyglisvert eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.