Körfubolti

Botnliðið sendir Bandaríkjamanninn heim

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Palmer í leik með Lynn-háskólanum.
Palmer í leik með Lynn-háskólanum. vísir/getty
Þór Akureyri, botnlið Domino's deildar karla í körfubolta, hefur sent Bandaríkjamanninn Jamal Palmer heim samkvæmt heimildum Vísis.

Parker lék sinn síðasta leik fyrir Þór þegar liðið tapaði fyrir Tindastóli, 89-77, á Sauðárkróki í gær. Hann skoraði 17 stig í leiknum.

Í fimm leikjum með Þór var Palmer með 16,0 stig og 5,4 fráköst að meðaltali.

Þórsarar hafa tapað öllum fimm leikjum sínum í Domino's deild karla í vetur.

Næsti leikur liðsins er gegn Keflavík næsta fimmtudag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×