Fyrsti leikur toppliðsins í átján daga er stórleikur á Ásvöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2019 15:30 Frá leik Hauka og ÍBV í vor. Vísir/Vilhelm
Haukarnir taka á móti Eyjamönnum á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik Olís deildar karla í handbolta eftir landsleikjahlé. Þetta er stórleikur sjöundu umferðar enda hafa þessi lið spilað ófáa úrslitaleikina undanfarin ár og eru áfram í hópi toppliðanna í vetur. Haukar eru á toppi deildarinnar en Eyjamenn eru þremur stigum neðar í fimmta sætinu. Leikurinn hefst klukkan 18.30 og verður í beinni á Stöð 2 Sport 3. Haukarnir nýttu sér tap ÍR-inga í síðustu umferð og komust upp í efsta sæti deildarinnar eftir sigur á Val. Haukar eru eina taplausa lið deildarinnar. Haukar spiluðu síðast leik 12. október síðastliðinn og hafa því beðið í átján daga eftir þessum leik. Olís deildin fór í landsleikjahlé vegna vináttuleikja við Svía. Eyjamenn unnu fjóra fyrstu leiki sína en hafa tapað tveimur síðustu leikjum sínum með einu marki og unnu síðast leik á móti Val fyrir nákvæmlega mánuði síðan. Haukar slógu ÍBV út úr úrslitakeppninni í vor eftir sigur í oddaleik á Ásvöllum. Leikurinn í kvöld verður síðasti innbyrðis leikur liðanna síðan þá. Haukar unnu alla þrjá heimaleiki sína í umræddu undanúrslitaeinvígi liðanna.
Olís-deild karla Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim Sjá meira