Fótbolti

Mark Berglindar dugði ekki til í París | Sjáðu markið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Berglind Björg í leik með Blikum í sumar.
Berglind Björg í leik með Blikum í sumar. vísir/bára
Breiðablik er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 3-1 tap gegn PSG í Frakklandi í kvöld í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitunum.

PSG vann fyrri leik liðanna í Kópavoginum, 4-0, og því var Breiðablik nánast bara að spila upp á stoltið í síðari leiknum sem fór fram í París í kvöld.

Jordyn Huitema kom PSG yfir strax á sjöttu mínútu en Berglind Björg Þorvaldsdóttir jafnaði metin á síðustu mínútu fyrri hálfleiks með laglegu marki.







Tíunda mark Berglindar í Meistaradeildinni þetta tímabilið en Huitema kom svo PSG yfir tólf mínútum fyrir leikslok. Í uppbótartíma bætti Kadidiatou Diani við marki og lokatölur því 3-1. Samanlagt 7-1.

Breiðablik er því úr leik þetta tímabilið en PSG er komið áfram í átta liða úrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×