Kynna umbótatillögur ætluðum að lægja öldurnar í Líbanon Atli Ísleifsson skrifar 21. október 2019 13:00 Mörg hundruð þúsund manna hafa tekið þátt í mótmælunum. Getty
Búist er við að ríkisstjórnarflokkar Líbanons samþykki brátt röð frumvarpa sem snúa að efnahagsmálum með það að markmiði að lægja öldurnar í landinu. Mótmælin sem hafa staðið síðustu daga eru þau fjölmennustu í landinu í mörg ár.BBC segir frá því að með lagabreytingunum verði laun háttsettra embættismanna helminguð og hætt verði við að koma á nýjum sköttum. Mótmælin hafa nú staðið í fimm daga og hafa margir óskað eftir að boðað verði til allsherjarverkfalls í landinu. Blossuðu mótmælin upp eftir að tilkynnt var að til stæði að koma á skatti á myndbandssamtöl í spjallforritinu WhatsApp.Sjá einnig:Þúsundir tóku víkingaklappið í mótmælum í Beirút Mörg hundruð þúsund manna hafa tekið þátt í mótmælunum þar sem má sjá skilti með ákall gegn spillingu í stjórnkerfinu og niðurskurðaraðgerðum líbanskra stjórnvalda. Skuldastaða líbanska ríkisins er há og hagvöxtur lítill. Forsætisráðherrann Saad Hariri hefur gefið stjórnarflokkunum 72 klukkustundir til að samþykkja umbótatillögurnar til að bregðast við ástandinu. Gaf hann í skyn að hann kynni að segja af sér verði tillögurnar ekki samþykktar af þinginu. Mótmælendur hafa lokað vegum í miðborg höfuðborgarinnar Beirút. Sömuleiðis er búið að loka fjölda skóla, banka og háskóla.
Líbanon Tengdar fréttir Þúsundir tóku víkingaklappið í mótmælum í Beirút Undanfarnar daga hafa tugir þúsunda íbúa Líbanon mótmælt á götum borga landsins. Um er að ræða einhver umfangsmestu mótmæli landsins í nokkur ár og er verið að mótmæla spillingu, efnahagsástandi landsins og miklu atvinnuleysi, svo eitthvað sé nefnt. 19. október 2019 10:45 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Vučić játar ósigur Erlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Þúsundir tóku víkingaklappið í mótmælum í Beirút Undanfarnar daga hafa tugir þúsunda íbúa Líbanon mótmælt á götum borga landsins. Um er að ræða einhver umfangsmestu mótmæli landsins í nokkur ár og er verið að mótmæla spillingu, efnahagsástandi landsins og miklu atvinnuleysi, svo eitthvað sé nefnt. 19. október 2019 10:45