Rjúpnakvöld hjá Skotvís 24. október Karl Lúðvíksson skrifar 21. október 2019 15:52
Þann 24. október nk. mun SKOTVÍS halda sitt árlega RJÚPNAKVÖLD í sal Sjóstangveiðifélagsins að Grandagarði 18. Fjöldi SKOTVÍS félaga fór yfir 2000 múrinn um helgina en þeim hefur fjölgað úr 1100 fyrir 18 mánuðum síðan. Mikill kraftur er í félaginu sem skilgreinir sig sem útivistar, náttúru og umhverfisverndarsamtök. Nýlega gekk félagið til liðs við FACE sem eru samtök skotveiðimanna í Evrópu. Nýleg herferð félagsins í sasmtarfi við systurfélög sín á Norðurlöndum um að fasa út plasti í haglaskotum hefur vakið mikla athygli. Á rjúpnakvöldinu mun Arne Sólmundsson verkfræðingur fara yfir vinnu SKOTVÍS við greiningar gagna um rjúpnaveiðar. Niðurstöður hans leiddu til þess að opnað var fyrir fleiri rjúpnaveiðidaga í fyrra og aftur nú í haust. Í ljós kom að fjöldi leyfilegra veiðidaga jók ekki sókn veiðimann í stofninn né jók heildarveiðina. Einnig að ástæða lækkandi toppa rjúpunnar er að leita í viðkomu hennar en hún hefur minnkað úr 8,5 rjúpuungum á hænu í 6 á 30 árum. Umhverfisstofnun mun senda sérfræðing sem fer yfir veiðitölur og sóknartölur sem hafa fengist úr veiðikortakerfinu frá því það var tekið í notkun 1995. Náttúrufræðistofnun Íslands mun kynna rjúpnarannsóknir stofnunarinnar og kynna nýtt samstarf við veiðimenn. Ívar Pálsson lögfræðingur og stjórnarmaður SKOTVÍS mun síðan fara létt yfir hvar má veiða og hvar ekki. Einnig verður leiðsögn fyrir nýliða á rjúpnaveiðum og jafnvel eitthvað meira skemmtilegt! Boðið verður upp á léttar veitingar.
Skotveiði Mest lesið Ein best gleymda áin við bæjarmörkin Veiði Lifnar yfir bleikjuveiði í Vífilstaðavatni Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði 20 punda lax úr Norðurá Veiði Veiðisvæði Skálholts komin í sölu Veiði Fjögurra ára að æfa fluguköst Veiði Grein um Stóru Laxá í Þýsku blaði Veiði 24 laxar á land við opnun Þjórsár Veiði Fræðslukvöld SVFR farin í gang Veiði Hreinsunardagur framundan í Elliðaánum Veiði