„Við eigum hver sinn kafla, Gunni hafði samband við okkur og bað okkur um að láta sig hafa efni um vinsælustu uppskriftirnar af síðunum okkar,“ segir María Gomez sem heldur úti bloggsíðunni Paz.is. María skrifar mikið um mat og innanhúshönnun og er líka dugleg að gefa fólki Innblástur í gegnum Instagram.
„Hver og ein fær að vera hún sjálf. Við eigum matarmyndirnar og uppskriftirnar í okkar kafla, tökum myndirnar sjálfar og skrifum textann, þetta er svo skemmtilegt því þeir sem þekkja mitt efni sjá alveg mig í mínum kafla.“

Persónulegir kaflar
Þessar öflugu konur á bakvið bókina eru allar að gera góða hluti en þekktust samt ekki vel innbyrðis, sumar þeirra munu hittast í fyrsta skipti í útgáfupartýinu.„Það er svolítið fyndið að kalla þetta samstarfsverkefni því að við þekkjumst ekkert. Ég og Berglind vorum aðeins búnar að kynnast áður og ég og Hildur þekktumst lítillega en það hefur nú myndast vinskapur milli mín og Hildar og mín og Berglindar en við erum aldrei þrjár að tala saman,“ segir María og hlær. „Verðið er líka snilld, svo þetta er frábær jólagjöf.“
María segir að það geri bókina að heild, að fremst og aftast í bókinni og á undan hverjum kafla, eru fallegar svarthvítar myndir sem Hildur Rut tók af þeim öllum fyrir bókina. Á undan hverjum kafla eru persónulegar myndir sem Hildur Rut tók af hverjum bloggara og margar völdu að hafa fjölskylduna með á myndunum líka.
„Hver og ein er með upphafskafla þar sem hún segir frá sjálfri sér með eigin orðum.“

Íhugaði að hætta að blogga
Það er Gunnar Már Sigfússon sem gefur út bókina en hann hefur einnig gefið út LKL bækur síðustu ár. María segir að það sé æðislegt að sjá hvað styrkleikar hverrar og einnar fái að njóta sín í bókinni, hvort sem það eru heilsuuppskriftir eða girnilegar kökur.„Hildur Rut setur upp bókina en Gunni kom með hugmyndina að útlitinu, hann hafði séð þetta einhvern tímann í tímariti fyrir mörgum árum í Ameríku og hann langaði svo í þetta útlit á bók, þetta sat alltaf í honum.“

María segir að þessi bók hafi komið á fullkomnum tíma þar sem hún stóð á tímamótum með bloggið sitt og var jafnvel að íhuga það að loka síðunni. Bókin gaf henni kraft til að halda áfram og eru því spennandi tímar og verkefni framundan hjá henni á næstunni.
„Þetta er svo falleg bók. Hugmyndin er sú að þetta verði að bókasería, sem hægt verði að safna.“ Gunnar Már stefnir á að gefa út fleiri svona bækur með uppskriftum eftir mismunandi aðila, en útlitið verður alltaf það sama svo þær verða flottar saman uppi í hillu.
Heiðraði föður sinn
Bókin er auglýst þannig að þar sé að finna 20 uppskriftir frá sex bloggurum, en staðreyndin er sú að í bókinni eru 121 uppskrift.„Pabbi dó þegar ég var að gera þessa bók. Daginn eftir að ég samþykkti að vera með var hringt í mig og sagt að pabbi væri veikur á spítala, ég þarf því bara að stökkva út.“Þegar María frétti af veikindunum bókaði hún sér flug til Spánar, til þess að missa ekki af tækifærinu til að kveðja.

María fékk því að hafa eina leyniuppskrift í bókinni, honum til heiðurs. Faðir Maríu lést viku eftir að hún kom heim aftur frá því að heimsækja hann á spítalann á Spáni.
„Ég hef ótrúlega mikla trú á þessari bók og er virkilega stolt af henni. Hver og ein fær að skína í sínum kafla.“
