Tónlist

Stjörnum prýtt massamyndband DJ MuscleBoy

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rándýrt tónlistarmyndband sem Hannes Þór Halldórsson leikstýrir.
Rándýrt tónlistarmyndband sem Hannes Þór Halldórsson leikstýrir.
Tónlistarmaðurinn Egill Einarsson sem gengur undir nafninu DJ MuscleBoy gaf í dag út nýtt tónlistarmyndband við lagið Muscle Club og má segja að myndbandið sé af dýrari gerðinni.

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson leikstýrði myndbandinu og koma þar fram margar stórstjörnur hér á landi.

Þeir sem koma meðal annars fram í myndbandinu eru Björn Hlynur Haraldsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Magg Bess, Sveppi, Hafþór Júlíus Björnsson, Ívar Guðmundsson, Arnar Grant, Auðunn Blöndal, Óli Geir og nánast allir Íslendingar sem tengjast vaxtarræktar og fitness bransanum.

Við gerð myndbandsins var Mjölni breytt í risastóran vöðvaklúbb og yfir 80 manns tóku þátt í því. Muscleboy fær stórsöngvarann Sverri Bergmann með sér í lið, en hann söng einmitt líka í laginu Summerbody sem kom út í sumar. 

Svo virðist sem meðlimir í Muscle Club safni saman öllum þeim sem eru í yfirþyngd og drekki sjeik sem búinn er til úr þeim. Sverrir Þór Sverrisson verður fyrir barðinu á blandaranum í myndbandinu og virðist sem svo að nokkrir yfir kjörþyngd séu týndur og leikur Björn Hlynur lögreglumann í myndbandinu sem leitar að þeim.

Hér að neðan má sjá útkomuna.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.