Menning

Sækja titilinn í ljóð Jóhannesar úr Kötlum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ásta Soffía og Anders kynntust þegar þau voru í námi í Noregi.
Ásta Soffía og Anders kynntust þegar þau voru í námi í Noregi.
Úr augum þér fiðrildi fljúga er yfirskrift íslensk-norskra tónleika í Sigurjónssafni á Laugarnestanga í kvöld. Flytjendur eru Ásta Soffía Þorgeirsdóttir á harmóníku og Anders Abelseth á saxófón. Titillinn er sóttur í ljóðið Fiðrildi eftir Jóhannes úr Kötlum. Fleiri ljóð, bæði eftir Þórarin Eldjárn og Gro Dahle, koma við sögu og líka norsk þjóðsaga.

Tónlistin er ný af nálinni, hún er eftir Ásbjörgu Jónsdóttur og Birgit Djupedal en flytjendurnir tengja tónverkin saman með fríum spuna. Það er þar sem ljóðin blandast inn í, að sögn Ástu Soffíu. Hún segir verkefnið vera óð til íslenskrar og norskrar bókmenntalistar. „Oftast er texti sunginn við tónlist en við reynum að nota innblásturinn frá ljóðunum inn í tónlistina. En ég les ljóðin á mismunandi stöðum í flutningnum og þau eru birt í efnisskránni. Anders notar líka mikið röddina og syngur norska vögguvísu á einum stað,“ útskýrir hún.

Eftir tónleikana í Sigurjónssafni verða einir í Hjarðarholti í Dölum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.