Handbolti

Fimmtíu prósent markvarsla hjá Viktori Gísla í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson.
Viktor Gísli Hallgrímsson. VÍSIR
Viktor Gísli Hallgrímsson lokaði markinu er GOG vann tveggja marka sigur á Skanderborg, 29-27, í danska handboltanum í dag.

Viktor Gísli endaði með ellefu skot varinn, eða fimmtíu prósent markvörslu, í sigrinum nauma en GOG var einu marki yfir í hálfleik.

Íslenski útileikmennirnir höfðu hægt um sig. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum en Óðinn Þór Ríkharðsson klikkaði á eina skoti sínu.

GOG er í sjötta sæti deildarinnar en Skanderborg er í því níunda.

Árni Bragi Eyjólfsson skoraði eitt mark en Ólafur Gústafsson ekkert er KIF Kolding tapaði 33-26 gegn Frederica í sömu deild í dag.

Kolding er á botninum með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×