Markalaust í Madrídarslagnum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 28. september 2019 20:45 Markalaust jafntefli varð í stórleiknum um Madrídarborg í La Liga deildinni á Spáni í kvöld. Það voru dýrmæt stig í boði í leiknum en það er mjög þröngt á þingi á toppi spænsku deildarinnar. Liðin náðu hins vegar ekki að skapa sér almennileg færi í fyrri hálfleik. Snemma í þeim seinni fékk Gareth Bale gott færi en hann skaut framhjá markinu. Um miðjan hálfleikinn fékk Atletico gott færi upp úr hornspyrnu og stuttu seinna varði Jan Oblak frábærlega frá Karim Benzema. Mark kom hins vegar ekki í leikinn og því 0-0 jafntefli niðurstaðan. Real Madrid sest því á topp deildarinnar með 15 stig og er eina ósigraða liðið í deildinni. Atletico Madrid er með stigi minna í þriðja sæti. Spænski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti