Fjórtándi Formúlu 1 kappakstur ársins fer fram á Monza brautinni á Ítalíu um helgina. Ferrari verða á heimavelli og eftir sigur í Belgíu er liðið vongott um góð úrslit á sunnudaginn.
Ítölsku áhorfendurnir eru þeir allra ástríðufyllstu í heimi. Tifosi, eins og þeir eru kallaðir, hafa þó ekki séð sína menn vinna á Monza síðan Fernando Alonso vann fyrir Ferrari árið 2010.
Það gæti hinsvegar breyst um helgina. Ferrari tryggði sér sinn fyrsta sigur í Belgíu um síðustu helgi og er ljóst að bíll þeirra er góður á hröðum brautum eins og Monza.
Monza verður á dagatalinu til 2024
Ítalski kappaksturinn er einn sá sögufrægasti í Formúlu 1. Aðeins Ítalía og Bretland hafa haldið Formúlu keppni öll ár síðan mótið var stofnað árið 1950.
Fyrsti kappaksturinn á Monza brautinni var haldinn árið 1921 en brautin hefur að sjálfsögðu breyst talsvert í gegnum árin.
Ferrari verður að teljast sigurstranglegt um helgina þar sem lykill að velgengni á Monza er vélarafl. Þar virðist Ferrari hafa yfirhöndina gegn Mercedes eins og sást á beinu köflunum á Spa um síðustu helgi.
Kappaksurinn, tímatökur og æfingar verða að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um helgina. Útsending frá kappakstrinum hefst klukkan 12:50 á sunnudag.
Formúla 1