Bunney gekk í raðir Bolton frá Northampton í byrjun mánaðarins og hefur enn ekki spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Englendingurinn er með brotin rifbein og viðbein eftir slysið en hann mun dvelja á sjúkrahúsinu í það minnsta næstu tvo sólarhringa.
Bolton Wanderers left-back Joe Bunney is in hospital after breaking ribs and a collarbone in a road accident.
Full story
https://t.co/g1ReJojKCYpic.twitter.com/qTxgNsEEGm
— BBC Sport (@BBCSport) September 9, 2019
„Allir hjá Bolton vonast eftir því að Joe nái bata sem fyrst,“ segir í yfirlýsingu frá enska C-deildarfélginu.
Bolton hefur verið í fjárhagsörðugleikum og byrjaði með tólf mínusstig. Þeim var bjargað á síðustu stundu þann 28. ágúst er félagið var keypt af Football Ventures.