Ein aðalástæðan fyrir jarðarkaupum Ratcliffes er að vernda íslenska laxinn Jóhann K. Jóhannsson skrifar 12. ágúst 2019 18:45 Frá undirritun samkomulagsins í dag. Vísir/Jóhann K.
Fulltrúi breska auðjöfursins Jim Ratcliffes segir eina aðal ástæðu þess að hann fjárfesti í jörðum hér á landi, að vernda íslenska laxastofninn og umhverfi hans. Fjárfestingafyrirtæki Ratcliffes og Hafrannsóknarstofnun skrifuðu í dag undir samkomulag um að Ratcliffe fjármagni að fullu umfangsmikla rannsóknaráætlun. Samkomulagið við Hafrannsóknarstofnun er hluti af sjálfbærri langtímaverndaráætlun sem miðar að því að laxveiðar á Íslandi verði áfram þær bestu og sjálfbærustu í heimi, að því fram kemur fréttatilkynningu. Efnt var til blaðamannafundar síðdegis í dag þar sem fulltrúar breska auðmannsins Jim Ratcliffe og Hafrannsóknarstofnunn undirrituðu samkomulag um verkefnið. „Þarna er verið að hrinda af stað nýrri rannsókn á laxinum fyrir norðaustan, í Vopnafirðinum og Þistilfirðinum og allt sem eykur þekkingu okkar á þessum skemmtilega fiski er kærkomin,“ segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar um verkefnið að loknum blaðamannafundi í dag.Samkomulag fulltrúa Ratcliffes og Hafrannsóknarstofnunar var innsiglað með handabandiVísir/Jóhann K.Vill vernda íslenska laxastofninn Verkefnið nær til fjögurra ára, kostnaðurinn er um áttatíu milljónir og verður doktorsnemi ráðinn til þess að vinna að rannsóknum. Í fréttatilkynningunni segir fulltrúi Ineos, fjárfestingafyrirtækis Ratcliffe um verkefnið, að lífsskilyrði laxins á Norðausturlandi verða bara bætt með sjálfbærri fjárfestingu í jörðum og ám á þessu svæði. Nýverið keypti Ratcliffe jörðina að Brúarlandi 2 í Þistilfirði og segir það hluta að aðgerðum til þess að vernda íslenska laxastofninn. Þessu utan hefur auðkýfingurinn fjárfest í fjölda jarða á þessum slóðum undanfarin misseri. Fram hefur komið að menn hafi áhyggjur af fjárfestingum erlendra auðmanna á jörðum hér á landi.„Ég held að í þessu tilfelli, Vonandi hafa menn ekki of miklar áhyggjur því eins og þú sérð er aðaltilgangurinn að vernda umhverfið og laxinn sem lifir í þessu umhverfi. Fyrir utan það er litlu við að bæta. Það sést á viðbrögðum Jims hvað honum þykir vænt um þetta svæði og að hann vill vernda það,“ segir Peter S. Williams, tæknistjóri og yfirmaður fjárfestinga INEOS Group, fjárfestingafélags Ratcliffes.Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær vinna stjórnvöld að því að kortleggja jarðir í eigu útlendinga og hafa forsætisráðherra, fjármálaráðherra og samgönguráðherra öll sagt að endurskoða þurfi lög um eignarhald erlendra auðmanna á jörðum hér á landi. Peter segir það ekki hafa áhrif á rannsóknarverkefnið hér á landi. „Ég held að það hafi engin áhrif á sjálf rannsóknarverkefnin. Við munum augljóslega vinna eftir þeim reglum og innan þess lagaramma sem yfirvöld setja. Það er í góðu lagi okkar vegna. Svo við vinnum innan þess ramma,“ segir Williams.Munuð þið kaupa meira land? „Ég tek ekki þátt í þeirri starfsemi svo ég get ekkert sagt um það,“ segir Williams.
Jarðakaup útlendinga Umhverfismál Stangveiði Vopnafjörður Tengdar fréttir Ratcliffe boðar nýja laxastiga og miklar hrognasleppingar Auðmaðurinn Jim Ratcliffe vill útvíkka hrygningarsvæði laxa á Norðausturlandi þar sem hann á fjölda bújarða. Í yfirlýsingu segir að hann standi að ítarlegri langtímarannsókn á afkomu laxa í íslenskum ám og í norðanverðu Atlantshafi í samstarfi við Hafrannsóknastofnun hér og íslenska og erlenda háskóla. 6. ágúst 2019 06:30 Víðtæk áhrif á Atlantshafslax af áformum Ratcliffes ólíkleg Formaður Landssambands veiðifélaga telur ekki ólíklegt að fyrirhugaðar framkvæmdir Jims Ratcliffe gætu haft jákvæð áhrif í þeim ám sem framkvæmdirnar snúa að. Hins vegar geri þær lítið fyrir stofninn í heild sinni. Sveitarstjórnarrráðherra undrast seinagang í stjórnsýslunni og vill lagafrumvarp í haust. 7. ágúst 2019 06:15 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira
Ratcliffe boðar nýja laxastiga og miklar hrognasleppingar Auðmaðurinn Jim Ratcliffe vill útvíkka hrygningarsvæði laxa á Norðausturlandi þar sem hann á fjölda bújarða. Í yfirlýsingu segir að hann standi að ítarlegri langtímarannsókn á afkomu laxa í íslenskum ám og í norðanverðu Atlantshafi í samstarfi við Hafrannsóknastofnun hér og íslenska og erlenda háskóla. 6. ágúst 2019 06:30
Víðtæk áhrif á Atlantshafslax af áformum Ratcliffes ólíkleg Formaður Landssambands veiðifélaga telur ekki ólíklegt að fyrirhugaðar framkvæmdir Jims Ratcliffe gætu haft jákvæð áhrif í þeim ám sem framkvæmdirnar snúa að. Hins vegar geri þær lítið fyrir stofninn í heild sinni. Sveitarstjórnarrráðherra undrast seinagang í stjórnsýslunni og vill lagafrumvarp í haust. 7. ágúst 2019 06:15