Lífið

Höfðu á­hyggjur af sam­bandi Harry og Meg­han í upp­hafi

Sylvía Hall skrifar
Katrín og Vilhjálmur á Wimbledon fyrr í ár.
Katrín og Vilhjálmur á Wimbledon fyrr í ár. Vísir/Getty

Í nýrri heimildarmynd um bræðurna og prinsana Vilhjálm og Harry er fullyrt að Vilhjálmur og eiginkona hans, Katrín, höfðu ákveðnar efasemdir um samband bróðurins við bandarísku leikkonuna Meghan Markle, en þau gengu í það heilaga í maí á síðasta ári eftir tæplega tveggja ára samband. Heimildarmyndin heitir „William & Harry: Princes at War“, sem á íslensku myndi þýðast sem „Prinsar í stríði“.



Spekingar í myndinni halda því fram að samband Harry við leikkonuna hafi skapað togstreitu milli bræðranna, en sá eldri hafði beðið bróður sinn um að flýta sér ekki um of og leyfa sambandinu að þróast hægt og rólega. Það hafi farið öfugt ofan í Harry sem trúlofaðist leikkonunni rúmlega ári eftir að samband þeirra varð opinbert.



„Hann hafði aðeins þekkt [Meghan] í minna en ár þegar þau trúlofuðu sig. Hann settist niður með honum og sagði honum að taka því rólega, ekki ana áfram,“ sagði blaðamaðurinn Carole Malone í viðtali í heimildarmyndinni.



Sjá einnig: Drottningin sögð hafa fengið sig fullsadda af meintum deilum Meghan og Katrínar



„Þetta gerðist svo hratt að Vilhjálmur og Katrín fengu aldrei tækifæri til þess að kynnast Meghan því Harry sjálfur þekkti Meghan varla,“ sagði Ingrid Stewart, sérfræðingur í konungsfjölskyldunni og ritstjóri tímaritsins Majesty.

Harry er sagður hafa orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð bróður síns.Vísir/Getty

Þá er Harry sagður hafa orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð bróður síns og upplifað lítinn stuðning. Hann hafi alla tíð verið jákvæður í garð Katrínar og því átt von á sama stuðningi frá bróður sínum í sínu sambandi. 



Samband Meghan og Harry vakti mikla athygli þegar það komst í sviðsljósið á sínum tíma. Margir fögnuðu því að sjá leikkonuna koma með ferskan blæ inn í annars einsleita konungsfjölskyldu á meðan aðrir létu ljót orð falla um Meghan, sem varð til þess að prinsinn sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann bað fjölmiðla og almenning að láta hana í friði. Fjölmiðlar hefðu gengið of langt í áreiti og sakaði hann bresku pressuna um kvenfyrirlitningu og rasisma í hennar garð. 



Hjónin eignuðust sitt fyrsta barn þann 6. maí á þessu ári, soninn Archie Harrisson Mountbatten-Windsor, eftir árlangt hjónaband.  


Tengdar fréttir

Heldur úti „leynilegum“ Instagram-reikningi

Meghan Markle hertogynjan af Sussex heldur að sögn vinar hennar úti "leynilegum“ Instagram-reikningi til að forðast fjölmiðla og halda sambandi við vini sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.