Fjórðungur lambahryggja fluttur út Sveinn Arnarsson skrifar 3. ágúst 2019 07:30 Tæplega þrjú þúsund tonn af lambakjöti hafa verið flutt út frá upphafi síðustu sláturtíðar. Fréttablaðið/GVA
Frá síðustu sláturtíð hafa verið flutt úr landi um 400 tonn af lambahryggjum eða hryggsneiðum. Árleg framleiðsla á hryggjum hér á landi er um 1.400 tonn. Á þá eftir að telja hvað hefur farið af hryggjum og hryggsneiðum þegar heilir og hálfir skrokkar eru sendir úr landi. Langt er síðan jafn lítið hefur verið til af lambakjötsbirgðum í landinu Í lok júní voru til í landinu um 1.100 tonn af lambakjöti sem ætti að duga út ágústmánuð en rúmlega 500 tonna af lambakjöti er að jafnaði neytt mánaðarlega hér á landi. Framleiðsla á lambakjöti síðasta haust var um 10.500 tonn. Um það bil 65 prósenta þess er neytt hér á landi. Því sem eftir er þarf að koma úr landi á sem bestu verði til að kjötið safnist ekki fyrir hér á landi. Oft á tíðum er um að ræða hliðarafurðir sem við Íslendingar viljum síður á okkar veisluborð. Hins vegar er það staðreynd að bændur fá jafn mikið í beingreiðslur fyrir það kjöt. Frá upphafi sláturtíðar hafa afurðastöðvar og sláturleyfishafar flutt úr landi rétt tæplega þrjú þúsund tonn af lambakjöti. Meðalverð útflutts lambakjöts á þessu tímabili er um 710 krónur á kílóið og hefur verð hækkað á síðustu árum.Guðfinna Harpa Árnadóttir, formaður Landssambands sauðfjárbænda, segir stutt í slátrun og að menn hafi kannski spennt bogann of hátt síðasta haust við útflutning. Hún vill sjá meira samráð milli sláturleyfishafa og afurðastöðva til að útflutningur sé sem hagkvæmastur. „Það eru ekki birtar opinberar birgðaupplýsingar og því erfitt að greina hvort um skort sé að ræða. Í lok júní voru rúmlega 1.100 tonn frá síðustu sláturtíð eftir sem er mjög lítið. Það er ekki langt síðan þessi tala var miklu hærri. Það er um tveggja mánaða sala þegar tveir mánuðir eru í sláturtíð.“ „Ég sem formaður Landssambands sauðfjárbænda er ekki í aðstöðu til að meta hvort menn hafi flutt of mikið út. Hins vegar hefur maður það á tilfinningunni að það hafi verið skotið yfir markið. Á móti kemur að sláturleyfishafar segja þessa hryggi sem fluttir eru úr landi ekki þá hryggi sem við þekkjum úti í búð.“ Að mati Landssambandsins eru kröfur verslunarmanna um að innflutning settar fram til að gera áhlaup á það sem er kölluð eðlileg verðmyndun á íslenskum markaði. „Kappið hjá Samtökum verslunar og þjónustu og Félagi atvinnurekenda snýst um að gera áhlaup á eðlilega verðmyndun á íslenskum markaði allt næsta ár með því að flytja inn mikið magn hryggja með undanþágu frá alþjóðlegum tollasamningum Íslands,“ sagði í yfirlýsingu sauðfjárbænda. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, vísar þessu til föðurhúsanna og segir álagningu verslana lága á íslenskar landbúnaðarvöður. Bændur fái líka lágt verð fyrir sína vöru. „Að okkar mati í þessu tilviki eru það afurðastöðvarnar sem eru að taka stærsta hlutann af kökunni. Bændur fá lítið og verslunin lítið í formi álagningar þannig að böndin berast alltaf að afurðastöðvunum,“ segir Andrés. Sauðfjárbændur fengu 5,2 milljarða króna frá ríkinu á þessu ári. Þegar Guðfinna Harpa er spurð hvort það skjóti ekki skökku við að þessi vara, sem skattgreiðendur borgi fyrir í formi ríkisstyrkja, skuli vera flutt út segir hún það góða spurningu. „Auðvitað er þetta spurning sem er eðlilegt að menn velti fyrir sér. Hluti þess sem fer út eru aukaafurðir sem fylgja óhjákvæmilega og er ekki markaðsvara hér á landi.“vísir/eyþór
Birtist í Fréttablaðinu Landbúnaður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira