Lífið

Gummi Ben í beinni á föstudagskvöldum á Stöð 2 í vetur

Andri Eysteinsson skrifar
Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur Benediktsson. Vísir/Vilhelm
Sjónvarpsmaðurinn, bareigandinn og íþróttalýsandinn Guðmundur Benediktsson, betur þekktur sem Gummi Ben, mun stýra nýjum skemmtiþætti sem sýndur verður í beinni á föstudagskvöldum á Stöð 2 í vetur.

Gummi sem hefur verið einn þáttastjórnanda Ísskápastríðs ásamt Evu Laufey Kjaran ásamt því að vera einn vinsælasta íþróttalýsandi landsins, segir ekki tímabært að uppljóstra um nákvæma útfærslu á þáttunum, en í samtali við Vísi lofar hann þó skemmtun á föstudagskvöldum í vetur.

Stöð 2 og Vísir eru í eigu Sýnar hf. 


Tengdar fréttir

Gummi Ben eins og listamaður í eldhúsinu

Viðskiptafélagarnir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson voru gestir í síðsta þætti af Ísskápastríðinu sem var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.