Sjálf upplifði ég mig stundum eins og línu á ósýnilegu grafi þar sem ólíkar breytur í lífinu mínu höfðu áhrif á það hversu hátt ég skoraði. Breytur sem höfðu áhrif á gengið mitt sem kvenkost. Sem betur fer er misjafnt hvaða breytur við skoðum eftir því hverju við erum að leita.
Fólk er með mismunandi kröfur og væntingar um tilvonandi maka og kannast flestir við það að hafa sagt eða hugsað: „Hann er alls ekki mín týpa!" eða „Hún er algjörlega mína týpa!“
Hvort skiptir starfstitillinn meira máli eða metnaður og drifkraftur?
Er einhver tékklisti um stétt og stöðu sem fólk er ósjálfrátt með þegar það leitar sér að maka eða eru það lífsgildin og húmor sem vega meira?Ég held að við séum öll með einhverja fyrirfram mótaða síu sem að við gerum okkur ekkert alltaf grein fyrir að við höfum. Við ósjálfrátt útilokum manneskjur sem við metum út frá einhverjum breytum að séu ekki okkar týpur. Þetta gerum við hiklaust og miskunnarlaust, jafnvel áður en við hittum manneskjuna.
Ég viðurkenni það fúslega að ég er sek um þetta sjálf.
Alveg þrælsek á köflum.
Að vera einhleyp, einstæð, tveggja barna móðir er til dæmis breyta sem að getur dregið gengið niður í augum sumra.
Og auðvitað á það við um bæði kynin. Sumt fólk, sérstaklega barnlaust fólk, vill alls ekki það sem er stundum kallað, „pakkinn“.
Bara ef ég ætti tíkall fyrir skiptin sem að ég heyrði að ég væri smá pakki.
Ég var að sjálfsögðu uppi með mér.
Svo segir hann:
Ég er ekki mikið fyrir svona spjall en má ég senda þér nokkrar spurningar og þú svarar þeim?Ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast og hugsaði í smá stund að núna myndi hann brjóta ísinn og koma með eitthvað fyndið og skemmtilegt.
Þær voru sjö.
Þær voru NÚMERAÐAR!
1. Við hvað starfar þú?
2. Hvað hefur þú komið til margra landa?
3. Uppáhalds maturinn þinn?
4. Stundar þú líkamsrækt eða útivist?
5. Hvað ertu menntuð?
6. Áttu börn?
7. Hvert er fimm ára planið þitt?
Áður en ég svaraði síðustu spurningunni ákvað ég að spyrja hann:
Hvað segirðu, hvernig gengur annars hjá þér að slá svörin mín inn í Excel?Hann svaraði með hláturkarli og baðst afsökunar á því ef að mér þætti þetta skrítið. Ég viðurkenni að mér fannst þetta skrítið en á sama tíma svolítið fyndið líka. Ég hugsaði með sjálfri mér að það væri nokkuð gefið að við værum ekki „týpurnar“ fyrir hvort annað ef að þetta væri ekki grín hjá honum.
Fimm ára plan? Ég er meira í því að njóta líðandi stundar þessa dagana og er ekki komin með neitt aðgerðarplan fyrir næstu fimm ár sem að ég deili með fólki. Nema jú, ég ætla að vera óþolandi hamingjusöm og lenda í fullt af ævintýrum.Það leið smá stund þangað til hann svaraði. En svo kom það:
Það er nú fallegt! Ég ætla að fá að hugsa þetta aðeins og heyri svo jafnvel í þér. Takk fyrir spjallið og hafðu það gott.Eftir þessi svör mín við númeruðu spurningunum sjö, féll gengið mitt harkalega úr flokknum áhugaverð gella niður í: Thank you, next!