Pepsi Max mörk kvenna: Þór/KA á ekki að tapa 3-0 þó það vanti leikmenn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. júlí 2019 16:30 Sandra Mayor hefur verið ein helsta ógn Þórs/KA fram á við síðustu ár vísir/bára
Þór/KA er í vandræðum í leikmannamálum þessa dagana. Mexíkóarnir tveir Bianca Sierra og Sandra Mayor eru í landsliðsverkefni og Arna Sif Ásgrímsdóttir og Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir eru meiddar. Allar fjórar eru lykilmenn í byrjunarliðinu en voru fjarverandi þegar Þór/KA tapaði fyrir Fylki í Pepsi Max deild kvenna. Sérfræðingar Pepsi Max marka kvenna á Stöð 2 Sport ræddu vandræði norðankvenna. „Þetta er áhætta ef þú ert að taka leikmenn sem spila fyrir mexíkóska landsliðið, það eru aðrir landsliðsgluggar,“ sagði Mist Rúnarsdóttir þegar Helena Ólafsdóttir velti fram spurningunni um hvort Þór/KA hefði átt að hleypa þeim mexíkósku í landsliðsverkefnið. „Ég held það sé ofboðslega erfitt að stoppa leikmanninn þinn í að fara í landsliðsverkefni, landsliðið er það stærsta.“ Ásthildur Helgadóttir tók undir með Mist. „Maður vill spila fyrir landsliðið og gerir hvað sem er til þess að gera það,“ sagði Ásthildur. Það er óheppilegt fyrir Þór/KA að landsliðsglugginn lendi á sama tíma og tveir lykilmenn eru frá vegna meiðsla, en sérfræðingarnir sögðu að aðrir leikmenn í liðinu ættu að geta stigið upp. „Það verður að berja saman einhverja trú þarna og mér finnst ekkert óeðlilegt að setja þær kröfur á þær að vinna liðin sem eru í sætunum fyrir neðan þær,“ sagði Mist. „Þetta er lið sem er búið að vera í toppbaráttu undan farin ár, góð uppbygging og metnaður fyrir norðan, þær eiga ekki að tapa 3-0 fyrir Fylki,“ sagði Ásthildur. Alla umræðuna má sjá hér að neðan.Klippa: Pepsi Max mörk kvenna: Erfitt að segja nei við landsliðsverkefnum
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira