Stjórn Icelandair Group hefur skrifað undir kaupsamning við félagið Berjaya Property Ireland Limited, dótturfélag malasísku fyrirtækjasamstæðunnar Berjaya Land Berhad, um að félagið eignist meirihluta í Icelandair Hotels ásamt þeim fasteignum sem tilheyra rekstri hótela keðjunnar. Viðskiptin munu ganga í gegn í lok árs.
Stofnandi og stjórnarformaður félagsins er Tan Sri Dato Vincent Tan, oftast þekktur sem Vincent Tan, en hann er eigandi velska knattspyrnuliðsins Cardiff City. Þá hefur hann fjárfest víða í ferðaþjónustu, fasteignum og fjarskipta- og netfyrirtækjum svo dæmi séu nefnd.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að nú sé stefna Icelandair að leggja áherslu á alþjóðlegan flugrekstur.
„Mjög gott skref í þeirri stefnubreytingu og styrkir okkar efnahagsreikning og einfaldar. Mjög ánægjulegt að erlendur fjárfestir hafi svo miklar trú á okkar starfsemi.“
Þá hafi margir haft áhuga á að fjárfesta í félaginu.

Samkvæmt kaupsamningnum muni Berjaya eignast 75% hlut í félaginu, háð því skilyrði að Icelandair Group haldi eftir 25% hlut í a.m.k. þrjú ár, en samhliða kaupsamningnum hafa Icelandair Group og Berjaya skrifað undir kaup- og söluréttarsamninga vegna eftirstandandi 25% hlutarins.
„Við sögðum það strax í upphafi þegar við hófum söluferlið, ekki þegar við hófum viðræður við þennan aðila heldur þegar við hófum ferlið almennt, að þá sögðum við að það kæmi vel til greina að eiga 20-30% hlut í félaginu áfram, með rétta samstarfsaðilanum, og það var í rauninni niðurstaðan í þessum viðskipum.“
Bogi Nils segir að að Vincent Tan sjái mikið tækifæri í Íslandi sem ferðamannalandi og að hann vilji taka þátt í uppbyggingu hér.
„Kaupin endurspegla afstöðu hans og hans fyrirtækis og fólks til Íslands og Íslands sem ferðamannalands. Hann hefur mikinn áhuga á Íslandi og telur að möguleikar Íslands í þessum geira séu miklir til framtíðar. […] Hann telur tækifæri í því að auka fjölda ferðamanna frá Asíu til Íslands.“