Fótbolti

Slæm byrjun hjá CSKA Moskvu | Guðmundur lagði upp mark í tapi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór sló í gegn með CSKA Moskvu á síðasta tímabili.
Arnór sló í gegn með CSKA Moskvu á síðasta tímabili. vísir/getty
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrjunarliði CSKA Moskvu sem laut í lægra haldi fyrir Krylya Sovetov Samara, 2-0, í 1. umferð rússnesku úrvalsdeildarinnar í dag.

Alexander Sobolev skoraði bæði mörk Krylya Sovetov Samara með sjö mínútna millibili snemma í seinni hálfleik.

Arnór var tekinn af velli þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Hann er á sínu öðru tímabili hjá CSKA líkt og Hörður Björgvin sem lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar.

Guðmundur lagði upp mark gegn Östersund.vísir/getty
Guðmundur Þórarinsson lagði upp mark Norrköping sem tapaði, 2-1, fyrir Östersund í sænsku úrvalsdeildinni.

Östersund komst yfir á 56. mínútu en ellefu mínútum síðar sendi Guðmundur boltann á Jordan Larsson sem skoraði. Sigurmark Östersund kom svo þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Norrköping er í 6. sæti deildarinnar með 24 stig eftir 16 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×