Toppliðin unnu bæði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júlí 2019 21:16 Aldís Kara og stöllur hennar í FH eru enn á toppi Inkasso-deildar kvenna. vísir/eyþór
Efstu tvö lið Inkasso-deildar kvenna, FH og Þróttur R., unnu bæði sína leiki í kvöld. FH vann 3-1 sigur á Aftureldingu í Kaplakrika. Birta Georgsdóttir skoraði tvö mörk fyrir FH-inga og Helena Ósk Hálfdánardóttir eitt. Darian Powell skoraði mark Mosfellinga sem eru í 4. sæti deildarinnar. FH er á toppnum með eins stigs forskot á Þrótt sem vann dramatískan sigur í Grindavík, 2-3. Olivia Marie Bergau skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Það var hennar annað mark í leiknum. Linda Líf Boama var einnig á skotskónum fyrir Þrótt. Nicole Maher og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (sjálfsmark) skoruðu fyrir Grindavík sem er í 8. sæti deildarinnar. Haukar unnu sinn annan leik í röð þegar þeir lögðu botnlið ÍR að velli, 0-1, í Mjóddinni. Vienna Behnke skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks. Haukar eru í 5. sæti deildarinnar með tólf stig. ÍR-ingar eru án stiga á botninum. Fjölnir vann 3-1 sigur á Augnabliki. Þetta var þriðji sigur Fjölniskvenna í síðustu fjórum leikjum. Sara Montoro skoraði tvö mörk fyrir Fjölni og Rósa Pálsdóttir eitt. Fjölniskonur eru í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar. Ásta Árnadóttir, fyrrverandi landsliðskona, skoraði mark Augnabliks sem er í 6. sæti deildarinnar. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Handbolti Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Handbolti Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Fótbolti Vantraust UEFA á Infantino stendur sem og sniðganga Fótbolti Fótboltamaður varð fyrir eldingu Fótbolti Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Íslenski boltinn Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Valur - Nordsjælland | Danir heimsækja Hlíðarenda Fótbolti Leikmannasamtökin segja um djúpstæða misbeitingu á valdi forsetans að ræða Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn Fleiri fréttir Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Stjarnan - Þróttur | Bæði lið þurfa sárlega á sigri að halda Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Kjartan Kári á leiðinni í Víking Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ „Það er erfitt að eiga við okkur“ Uppgjörið: Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Sjá meira