Heimsmarkmiðagátt opnuð Heimsljós kynnir 3. júlí 2019 10:30 Forsíða heimsmarkmiðagáttarinnar.
Verkefnastjórn stjórnvalda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hefur opnað Heimsmarkmiðagátt þar sem fólki gefst kostur á að koma verkefnum tengdum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna á framfæri. Tilgangurinn með gáttinni er að virkja samfélagið í heild sinni við innleiðingu heimsmarkmiðanna og tryggja góða upplýsingamiðlun milli stjórnvalda og hagsmunaaðila um markmiðin. Innsendingu verkefna í gáttina er ætlað að vera hvetjandi fyrir ýmsa aðila til að auka sjálfbærni í daglegri starfsemi. Þá getur innsending verkefna verið góð leið til þess að vekja athygli á hagnýtum og nýstárlegum verkefnum á sviði sjálfbærrar þróunar. Gáttin getur einnig nýst til þess að leita sér innblásturs og jafnvel til þess að finna mögulega samstarfsaðila að verkefnum. Heimsmarkmiðagáttin byggir á erlendum fyrirmyndum, meðal annars frá Finnlandi. Öllum er frjálst að senda inn verkefni í Heimsmarkmiðagáttina og skulu verkefnin uppfylla þau skilyrði að þau feli í sér mælanleg markmið sem stuðli að sjálfbærri þróun og þar með framgangi heimsmarkmiðanna. Þá skal sett fram tímasett áætlun og tiltekið hvenær áætlað er að markmiðum verði náð. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent