Í úrslitaleiknum munu Hollendingar mæta ríkjandi heimsmeisturum í Bandaríkjunum en úrslitaleikurinn fer fram í Lyon á sunnudaginn. Svíþjóð og England mætast í leiknum um þriðja sætið á laugardag.
FT Netherlands 1-0 Sweden
The Netherlands are into their first ever Women's World Cup final!
Live reaction @BBCOne https://t.co/K7ytMSWqXg#NEDSWE#FIFAWWC#ChangeTheGamepic.twitter.com/CDj21vJGeE
— BBC Sport (@BBCSport) July 3, 2019
Fyrri hálfleikurinn í kvöld var mjög leiðinlegur. Fá færi litu dagsins ljós og bæði lið voru mjög varkár. Leikmyndin varð eftir því og staðan markalaus í hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var ívið fjörugari. Bæði lið áttu sín færi. Sari Van Veenendaal, markvörður Hollands, þurfti að taka á stóra sínum einu sinni og Hollendingar skutu í stöng.
Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. Eina mark leiksins kom á 99. mínútu er Jackie Groenen tryggði Hollandi sigurinn.
Boltinn féll fyrir hana fyrir utan teig Svíþjóð, hún tók eina snertinu áður en hún skaut hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Laglegt skot og fyrsta mark hennar á mótinu.
1 - Jackie Groenen scored with her first shot on target this #FIFAWWC for the @oranjevrouwen. Timing. #NEDpic.twitter.com/ZLmrDHCZty
— OptaJohan (@OptaJohan) July 3, 2019
Það verða því Holland og Bandaríkin sem berjast um það að verða heimsmeistari kvenna árið 2019 en úrslitaleikurinn fer fram eins og áður segir á sunnudaginn.