Taktasmiðir semja oft stóran hluta af laglínu rapplaga eða popplaga, ef ekki alla laglínuna. „Þú getur ekki gert gott lag án þess að vera með góðan pródúser (taktasmið).“ Sjálfur stefnir Símon þó ekki á að vinna með íslenskum röppurum. „Ég hlusta varla á íslenskt rapp sjálfur,“ en Símon ber samt virðingu fyrir hörkunni sem rapparar í senunni hér á landi leggja í. Símon lofar að það séu mörg óútgefin lög á leiðinni í útgáfu. Planið er að gefa bæði út lög með öðrum listamönnum og ekki. „Ég er mjög spenntur fyrir því og hlakka til að sjá hvernig það spilast.“
Leitar að sínu hljóði
Eitthvað hefur Símon komið fram, bæði einn og með öðrum tónlistarmönnum á hátíðum á borð við Airwaves og Secret Solstice. „Ég spilaði á tónleikum með Kef LAVÍK og Vagina Boys í Hörpunni fyrir svona tveimur árum.“ Síðan ákvað Símon að hætta að koma fram með lifandi tónlist og sem plötusnúður. „Mig langaði að einbeita mér meira að því að pródúsa og finna mig sem tónlistarmann. Eftir að Símon dró sig í hlé hefur hann sökkt sér í það að finna þetta hljóð sem hann telur sig vera kominn langt með að gera.„Það er allt að koma til. Ég vil ná því markmiði að einhver hlusti á tónlistina og finni að það er ákveðið hljóð í mínum lögum. Það geta allir gert tónlist en það verður eitthvað að vera á bak við hana. Fólk þarf að geta tengt við lögin.“

Er reglulega í samskiptum við rapparann Kelvyn Colt
Síðasta ár hefur Símon unnið sem fyrirsæta fyrir umboðsstofuna Eskimo. „Ég fæ samt eiginlega öll verkefnin mín í gegnum Instagram, en þá segi ég þeim sem senda skilaboð beint til mín að hafa samband við Eskimo svo það sé öruggt að ég fái greitt.“ Símon segir að það séu mjög margir sem vilji greiða fyrir fyrirsætustörf með ýmsum vörum en það er varla hægt að lifa á þeim einum.Símon lék í tónlistarmyndbandi þýska rapparans Kelvyns Colt sem kom út í desember í fyrra. Colt hefur verið á uppleið síðustu misseri og er þekktastur fyrir lagið sitt Bury me alive. Lagið við myndbandið sem Símon lék í heitir Love&hate. Það var tekið upp í íslenskri náttúru þar sem leikararnir eru í gulum göllum sem stangast á við svarthvítt umhverfið. Það má því segja að litasamsetningin passi einstaklega vel við lagið. Símon hefur verið í samskiptum við Colt frá því að þeir kynntust við gerð myndbandsins og jafnvel hefur sú hugmynd komið upp að gera lag saman.

Rokkar það bara
Það er ekki leiðinlegt að vera fyrirsæta að sögn Símons sem hefur tekið þátt í mörgum tískusýningum síðan hann byrjaði. „Það er alveg mikið stress en um leið og þú ert kominn á staðinn og byrjaður þá er það mjög gaman. Maður rokkar það bara.“Hins vegar stefnir Símon á að starfa frekar sem fyrirsæta og taktasmiður erlendis enda þekkir hann marga í Bandaríkjunum þar sem hann er hálfbandarískur. Símon segir að hann sé að hugsa um að flytja annaðhvort til London eða Los Angeles, framtíðin er opin og að því er virðist björt líka.
Að lokum vill Símon þakka fyrir sig þar sem taktasmiðir fá oft ekki næga athygli fyrir sitt framlag til tónlistar í dag.