Veiði

20-30 laxa dagar í Eystri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Ytri og Eystri Rangá eru að komast í gang.
Ytri og Eystri Rangá eru að komast í gang. Mynd úr safni
Eystri Rangá og Urriðafoss eru búin að gefa mestu veiðina á þessu tímabili en það er nóg eftir af tímabilinu og margir þættir í óvissu.

Blanda til að mynda hefur oft farið hægt af stað og átt frábæra spretti um miðjan júlí og haldið dampi og gott betur út tímabilið, það má nefna sumarið 2015 þegar Blanda fór ekki í gang fyrr en um miðjan júlí.

Ytri Rangá fór líka seint af stað það ár og 96 laxar sem voru komnir í bók við samantekt á miðvikudaginn í síðustu viku segja ekkert til um framhaldið í henni. Á góðum smálaxaárum getur gangan oftar en ekki byrjað frekar seint og það er engin leið að spá fyrir umframhaldið þegar það er bara 7. júlí.

Veiðimenn virðast alla vega í meiri mæli veðja á til dæmis Rangárnar fyrir sumarveiðina og þá sérstaklega þeir sem eru búnir að fara í vatnsleysið á vesturlandi. Veiðin í Eystri Rangá er á mjög góðu skriði en þar eru að veiðast 20-30 laxar á dag og það er að sögn veiðimanna mikið líf víða í ánni og það virðist vera töluvert af laxi að ganga.

Það gæti farið að rigna um og ufir næstu helgi á vesturlandi og það hjálpar auðvitað mikið en það þarf mikið meira til að lyfta ánum upp í sæmilegt vatn. Þeir sem eiga bókuð leyfi í ánum í haust þegar fyrstu alvöru haustrigningarnar detta inn gætu lent í spennandi veiði. 






×