Nýi leikmaður Stólanna er tveimur árum eldri en Hlynur Bærings og Jón Arnór Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2019 12:00 Jasmin Perkovic í leik fyrir tíu árum. Getty/ Wojciech Figursk
Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson hættu í vetur í íslenska landsliðinu vegna aldurs en þeir eru samt langt frá því að vera elstu leikmenn Domino´s deildar karla á næstu leiktíð. Tindastóll tilkynnti það í gær að félagið væri búið að gera samning við króatíska framherjann JasminPerkovic. Það er ljóst að þar eru Stólarnir ekki að sækja sér einhvern nýgræðing í boltanum.JasminPerkovic er orðinn 38 ára gamall en hann er fæddur árið 1980. Perkovic mun halda upp á 39 ára afmælið sitt á jóladag. Perkovic er síðan 205 sentímetrar á hæð og 117 kíló. Hann er því engin smásmíði. Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson eru báðir fæddir árið 1982 og það eru líka tveir aðrir liðsfélagar Jóns Arnórs hjá KR eða þeir Jakob Örn Sigurðarson og Helgi Már Magnússon.Perkovic lék sína fyrstu leiki sem atvinnumaður með RijekaRijeka í Króatíu fyrir meira en tuttugu árum síðan og á ferlinum hefur hann spilað með liðum frá Króatíu, Slóveníu, Bosníu, Grikklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Austurríki, Kúveit og Slóvakíu.Perkovic kláraði síðustu leiktíð á að vera deildarmeistari í Slóvakíu með InterBratislava. Þar á undan var hann deildarmeistari í Austurríki. Á síðasta tímabili var JasminPerkovic með 7,8 stig og 3,1 frákast að meðaltali á 13,7 mínútum í leik. Tímabilið á undan var hann með 12,5 stig og 7,0 fráköst að meðaltali á 27,5 mínútum í leik með króatíska liðinu KKSkrljevo.Perkovic vann silfur á HM 21 árs liða með króatíska landsliðinu árið 2001. Hann hefur líka orðið þýskur og bosnískur meistari á sínum ferli.
Dominos-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Fleiri fréttir Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Sjá meira