Tekist á um réttmæti ákvörðunar VR Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. júní 2019 12:00 Þorsteinn og Ragnar Þór tókust á í útvarpsþættinum Sprengisandi í vikunni.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að fulltrúaráð félagsins í Lífeyrissjóði verzlunarmanna hafi verið í fullum rétti í að afturkalla umboð stjórnarmanna félagsins í lífeyrissjóðnum. Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Viðreisnar, segir að VR sé með ákvörðuninni að stunda pólitík og það sé óeðlilegt að verið sé að beina fyrirmælum til stjórnarmanna um hvernig reka eigi lífeyrissjóðinn. Þorsteinn og Ragnar voru gestir á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem þeir ræddu ákvörðun fulltrúaráðs VR að afturkalla umboð stjórmannanna. Ákvörðunin þykir umdeild en Fjármálaeftirlitið hefur meðal annars til rannsóknar hvort farið hafi verið að lögum þegar VR ákvað að skipta um stjórnarmenn. Meðal þess sem rannsakað verður er hvort stjórnarmenn VR sem komi inn í staðinn geti talist réttkjörnir. Ragnar Þór var spurður út í þetta í útvarpsþættinum. „Við erum eingöngu í stjórn VR, og fulltrúaráði að fylgja þeirri stefnu sem að Alþýðusambandið hefur sjálft sett. Ég heyrði nú ekki Fjármálaeftirlitið gera miklar athugasemdir, eða Samtök atvinnulífsins, þegar við voru að álykta um það á síðasta alþýðusambandsþingi. En við teljum okkur vera í fullum rétti. Okkar stjórnarmenn eru ekki kjörnir á ársfundi eða aðalfundi Lífeyrissjóðsins,“ sagði Ragnar Þór. Málið snýst um vaxtahækkkun á breytilegum verðtryggðum húsnæðislánum til sjóðfélaga úr 2,06 prósentum í 2,26 sem taka á gildi 1. ágúst næstkomandi.Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna sagði skilið við VR í vikunni vegna málsins.Ákvörðunin fari þvert gegn LífskjarasamningnumRagnar Þór segir ákvörðunina vera þvert á það sem Lífskjarasamningurinn standi fyrir. „Við settum okkur skýr markmið, til að mynda að gefa eftir launakröfur til að ná hörðum höndum að lækka kostnað til að lifa og við töldum að stjórn lífeyrissjóðsins hafi farið, ekki bara gegn Lífskjarasamningnum heldur líka gegn ályktun Alþýðusambandsins þar sem við ályktuðum á síðasta Alþýðusambandsþingi um tvennt. Það er að segja að verkalýðshreyfingin myndi beita sér í meira mæli fyrir hagsmunum almennings og okkar félagsmanna í gegnum lífeyrissjóðakerfið. A, í gegnum það að beina því til okkar stjórnarmanna að fjárfesta ekki í fyrirtækjum sem borga ofurlaun og bónusa, og svo B, að tryggja það að markaðsvextir, eða skuldabréfavextir, að ef þeir væru lækkandi myndi það skila sér í betri kjörum til okkar félagsmanna,“ sagði Ragnar Þór.Þorsteinn er á meðal þeirra sem gagnrýnt hefur ákvörðun fulltrúaráðs VR og í þættinum sagði hann það blasa við að þeir sem komi inn í stjórn lífeyrissjóðsins á vegum VR væru ekki réttkjörnir. Það þurfi aðalfund til þess að taka formlega ákvörðun um það hverjir séu í stjórn, þó að fyrirfram sé búið að tilnefna stjórnarmenn.„Það er að tvennu að huga í þessu. Það er kannski Fjármálaeftirlitsins að úrskurða um það á endanum hvernig stjórnarkjör fer fram og hvernig þá hægt sé að gera breytingar á stjórn. Ég hefði nú haldið miðað við að hafa skoðað lögin í fljótu bragði og samþykktir lífeyrissjóðsins að það liggi alveg augljóslega fyrir að þær ákvarðanir eru teknar á fundi sjóðsins, þó að það sé alveg rétt að það sé fyrirfram ákveðið í samþykktum hverjir tilnefni svo stjórnarmenn,“ sagði Þorsteinn.Algjörlega óeðlilegt að beina fyrirmælum til stjórnarmanna Sagði Þorsteinn að samkvæmt lögum væri markmið stjórnarmanna lífeyrissjóða einfalt, að hámarka ávöxtun lífeyrissparnaðar sjóðfélaga. Þá minnti hann á að eftir hrun hafi verið hávær umræða um að tryggja þyrfti sjálfstæði stjórnarmanna. „Stjórn getur ekki verið með þá stefnu að ætla að keyra niður vaxtastig í landinu ein og óstutt eða hlýta einhverjum fyrirmælum frá þá þeim félögum sem vissulega standa að hverjum lífeyrissjóði fyrir sig, hvort sem það eru atvinnurekendamegin eða launþegamegin. Ég held að í þessu samhengi sé mjög gott að hafa í huga að hér var mikil umræða á árunum fyrst eftir hrun að koma í veg fyrir óeðlileg afskipti af stjórnun Lífeyrissjóðanna og þá er horft, í fjárfestingalegum tilgangi, óttann við það að menn hafi mögulega verið að misnota með einhverjum hætti stöðu eða vald til að beina fjárfestingum í eina átt fremur en aðra,“ sagði Þorsteinn. Bætti hann við að með þessu væri VR að stunda verkalýðspólitík og að það væri ekkert skárra að verkalýðsfélag væri að reyna að hafa áhrif á störf stjórnar lífeyrissjóðs, frekar en einhver atvinnurekandi. „Það að vera að beina fyrirmælum til stjórnarmanna með hótunum um brottrekstur ella fer þvert gegn sjálfstæði stjórnarinnar. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri sjóðsins og stjórnarmenn eru persónulega ábyrgir ef menn gerast brotlegir með einhverjum hætti, geta jafnvel sætt málsóknum ef að þeir starfa með hætti sem er ekki í samræmi við lög um lífeyrissjóði. Þar af leiðandi er það náttúrulega algjörlega óeðlilegt að það sé verið að beina fyrirmælum til þeirra sömu stjórnarmanna frá aðilum sem ekki myndu bera ábyrgð á þeim ákvörðunum sem þeir eru að kalla eftir að verði teknar.“Hlusta má á umræðunar í spilaranum hér fyrir ofan.
Lífeyrissjóðir Sprengisandur Tengdar fréttir Vaxtahækkunin niðurlægjandi fyrir verkalýðshreyfinguna Rök stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verslunarmanna fyrir vaxtahækkun halda hvorki vatni né vindum að sögn formanns VR. 21. júní 2019 08:45 Þorsteinn segir inngrip stjórnar VR í störf lífeyrissjóðsins grafalvarleg Þorsteinn Víglundsson hefur þungar áhyggjur af ákvörðunar trúnaðarráðs VR. 21. júní 2019 13:32 Segir hækkun lánavaxta til að verja hagsmuni sjóðsfélaga Starfandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna segir að stjórnin hafi hækkað lánsvexti til að verja lífeyri hundrað og sjötíu þúsund sjóðsfélaga. Annars hefði verið hætta á að þeir greiddu með lánum sjóðsins. Núverandi stjórn starfar fram að næsta fundi þrátt fyrir að yfir helmingur hennar hafi misst umboð sitt. 21. júní 2019 19:45 FME rannsakar brottrekstur VR Fjármálaeftirlitið hefur til skoðunar þá ákvörðun VR að draga til baka umboð stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. 22. júní 2019 09:00 FME sagði Ólaf enn formann LIVE Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segist telja að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafi beðið eftir að fá tækifæri til að reka fulltrúa VR í stjórn lífeyrissjóðsins því hann hafði e 22. júní 2019 08:00 Mest lesið Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Veitingastaðurinn opinn en lónið opnar síðar Viðskipti innlent Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum Atvinnulíf Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Fleiri fréttir Veitingastaðurinn opinn en lónið opnar síðar Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Davíð Ernir til liðs við Athygli Netvís tekur við af SAFT Bein útsending: Er gervigreindin alvöru tækifæri fyrir Ísland? Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Eiríkur Orri til Ofar Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi „Það verður andskoti flókið“ Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Sjá meira
Vaxtahækkunin niðurlægjandi fyrir verkalýðshreyfinguna Rök stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verslunarmanna fyrir vaxtahækkun halda hvorki vatni né vindum að sögn formanns VR. 21. júní 2019 08:45
Þorsteinn segir inngrip stjórnar VR í störf lífeyrissjóðsins grafalvarleg Þorsteinn Víglundsson hefur þungar áhyggjur af ákvörðunar trúnaðarráðs VR. 21. júní 2019 13:32
Segir hækkun lánavaxta til að verja hagsmuni sjóðsfélaga Starfandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna segir að stjórnin hafi hækkað lánsvexti til að verja lífeyri hundrað og sjötíu þúsund sjóðsfélaga. Annars hefði verið hætta á að þeir greiddu með lánum sjóðsins. Núverandi stjórn starfar fram að næsta fundi þrátt fyrir að yfir helmingur hennar hafi misst umboð sitt. 21. júní 2019 19:45
FME rannsakar brottrekstur VR Fjármálaeftirlitið hefur til skoðunar þá ákvörðun VR að draga til baka umboð stjórnarmanna í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. 22. júní 2019 09:00
FME sagði Ólaf enn formann LIVE Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segist telja að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafi beðið eftir að fá tækifæri til að reka fulltrúa VR í stjórn lífeyrissjóðsins því hann hafði e 22. júní 2019 08:00
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent