Eriksen vill prófa eitthvað nýtt Anton Ingi Leifsson skrifar 5. júní 2019 13:00 Eriksen í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á dögunum. vísir/getty
Christian Eriksen, miðjumaður Tottenham og danska landsliðsins, segir í viðtali við Ekstra Bladet að hann gæti gott hugsað sér að yfirgefa Tottenham í sumar. Það þurfi þó að vera skref upp á við. Eriksen á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við Lundúnarliðið og hann segir að hann gæti vel hugsað sér að prófa eitthvað nýtt eftir að hafa spilað hjá þeim hvítklæddu í sex ár. „Ég ber mikla virðingu fyrir öllu sem hefur gerst hjá Tottenham og það yrði ekki neikvætt að vera áfram en ég hef einnig sagt að ég vil gjarnan prófa eitthvað nýtt,“ sagði Eriksen í samtali við Ekstra Bladet. „Ég vona að það verði komist að niðurstöðu einhverntímann í sumar. Það er planið. Í fótbolta veit maður ekki hvað gerist og hvenær. Það getur gerst hvenær sem er.“ „Þetta veltur á Daniel Levy og hvort að það sé eitthvað annað félag. Annars sest ég að borðinu og ræði nýjan samning,“ bætti Daninn við úr æfingabúðum danska landsliðsins sem undirbýr sig fyrir leiki gegn Georgíu og Írlandi. Real Madrid hefur reglulega verið orðað við Danann og hann segir að fari hann frá Tottenham verði það að vera skref upp á við. Það skilyrði uppfylli Real Madrid. „Það er ekki mikið sem Tottenham getur ekki uppfyllt og fari ég skal það vera skref upp á við. Real er skref upp á við en það krefst þess að Real hringi og segi að þeir vilji mig. Það hafa þeir ekki gert,“ sagði Daninn.
Fótbolti Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport „Hann sagði já takk“ Fótbolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira