Blikar fóru á toppinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. maí 2019 21:21 Agla María Albertsdóttir. Vísir/Vilhelm
Breiðablik tók toppsæti Pepsi Max deildar kvenna, í það minnsta þar til annað kvöld, með sigri á Keflavík í kvöld. Blikar unnu öruggan þriggja marka sigur suður með sjó. Agla María Albertsdóttir skoraði fyrsta markið undir lok fyrri hálfleiks. Hildur Antonsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir bættu sínu markinu við áður en Alexandra Jóhannsdóttir nældi í vítaspyrnu. Agla María fór á punktinn en Katrín Hanna Hauksdóttir varði í stöngina. Lokatölur 3-0 og Blikar eru enn með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Með sigrinum fer Breiðablik á toppinn en Valur getur endurheimt toppsætið með sigri á Stjörnunni á morgun. Nýliðar Fylkis fara vel af stað í deildinni og unnu 2-1 sigur á KR í leik sem gæti reynst mikilvægur fari svo að liðin endi í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. Hulda Hrund Arnarsdóttir kom heimakonum yfir í Árbænum á 16. mínútu og Ída Marín Hermannsdóttir tvöfaldaði forystuna áður en flautað var til leikhlés. Í seinni hálfleik klóraði Guðmunda Brynja Óladóttir í bakkann fyrir KR og gestirnir sóttu mikið undir lok leiksins. Jöfnunarmarkið kom hins vegar ekki og annar sigur Fylkis í sumar staðreynd. Í Kórnum unnu Selfyssingar eins marks sigur þar sem Grace Rapp skoraði eina markið á 81. mínútu. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Handbolti Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Fótbolti „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Handbolti Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Fótbolti „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Körfubolti „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Körfubolti Fleiri fréttir Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni Sjá meira