Í fréttinni kemur fram að lögregla telji að hinir grunuðu í málinu, áðurnefndur Gunnar og annar Íslendingur á fertugsaldri, hafi yfirgefið vettvang morðsins á bílnum. Þeir voru svo handteknir í Gamvik nokkrum klukkustundum síðar.
Sjá einnig: Gunnar lýsti átökum við bróður sinn í yfirheyrslu hjá lögreglu
Gunnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald og hinn maðurinn í vikulangt gæsluvarðhald. Þeim síðarnefnda var sleppt úr haldi í gær en hann neitar því að eiga einhverja aðild að morðinu.
„Við höfum, meðal annars, rannsakað bíl sem við vitum að var notaður eftir atvikið. Í bílnum fannst blóð,“ segir Torstein Pettersen, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Finnmörk, í samtali við VG. Þá hafi lögregla einnig lagt hald á skotvopn í tengslum við málið.
Vitni lýsa sambandi mannanna
Pettersen segir að atburðarásin umrætt kvöld sé tekin að skýrast. Nú sé leitast við að varpa ljósi á það sem fram fór klukkustundirnar áður en morðið var framið. Í gær var greint frá því að um fjörutíu vitni hefðu verið yfirheyrð í tengslum við rannsókn málsins.„Við yfirheyrum vitni sem þekktu hinn látna og hina grunuðu eða voru með þeim grunuðu klukkustundirnar áður. Við höfum líka talað við vitni sem geta lýst sambandinu milli hins látna og hinna grunuðu lengra aftur í tímann,“ segir Pettersen.
Vilja varpa ljósi á deilur bræðranna
Þá hafi Gunnar viðurkennt að hafa verið á staðnum og að hleypt hafi verið af byssu. Hann viðurkenni hins vegar ekki að hafa framið morðið. Deilur bræðranna, Gunnars og Gísla, séu lykilatriði í málinu en komið hefur fram að Gunnar sætti nálgunarbanni gagnvart bróður sínum vegna hótana.„Við viljum varpa ljósi á það hvernig þeim [deilunum] hefur verið háttað.“
Pettersen viðurkennir ekki að Íslendingarnir hafi reynt að flýja lögreglu þar sem þeir hafi verið í bænum þegar lögregla handtók þá klukkan 10:50 að norskum tíma um morguninn.
Þá hafi handtakan farið nokkuð friðsamlega fram. Einnig séu vísbendingar um að hinir grunuðu hafi verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna en tekin hafi verið blóðsýni sem muni skera úr um það.