„Leikmennirnir eru ekki vélmenni“ Anton Ingi Leifsson skrifar 12. apríl 2019 06:00 Lampard er í mikilli baráttu með Derby. vísir/getty
Frank Lampard, stjóri Derby, er ekki sáttur með enska knattspyrnusambandið sem hefur kært Derby fyrir hegðun leikmanna í leik gegn Brentford á dögunum. Ashley Cole fékk gult spjald fyrir leikaraskap á 48. mínútu í leiknum gegn Brentford en staðan var þá 2-2. Leikmenn Derby umkringdu þá dómara leiksins, John Brooks. „Þetta er ótrúlegt því þetta var klárt víti. Allir vissu það og þú gast séð það á leikmönnum Brentford hvernig þeir brugðust við,“ sagði Chelsea-goðsögnin við fjölmiðla. „Ég held að dómarinn myndi viðurkenna það ef hann myndi skoða þetta aftur. Og ef þú ert að biðja um að leikmenn sem eru að reyna að komast í umspilið og spiluðu góðan leik að haga sér eins og vélmenni þegar það er klár vítaspyrna, þá er það ómögulegt.“ Derby er í áttunda sæti B-deildarinnar, fimm stigum frá sæti í umspilinu um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. „Þetta væri annað ef þeir hefðu staðið í andlitinu á dómaranum í tíu til tuttugu sekúndur. En þegar þetta er fyrirliðinn þinn og hann ýtir hinum leikmönnunum í burtu, þá finnst mér það annað.“ „Auðvitað mun enginn hlusta á mig núna. Við erum ekki með vélmenni á vellinum og fyrirliðinn hagaði sér eins og hann hefði átt að gera svo ég mun ekki ræða við leikmennina því þeir gerðu ekkert rangt.“
Fótbolti Mest lesið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Enski boltinn Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Fótbolti Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Íslenski boltinn Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Golf Orri Steinn fram úr Eiði Smára Fótbolti Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Handbolti Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Enski boltinn „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Körfubolti „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ Fótbolti Fleiri fréttir Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina Heskey yngri tryggði City titil gegn United Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Benóný Breki fer á Wembley City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Sjá meira