Fer yfir búninga WOW frá upphafi til enda: „Öðruvísi og ferskara en þessi venjulegu flugfélög“ Stefán Árni Pálsson skrifar 1. apríl 2019 13:30 Gunni Hilmars hannaði alla búninga WOW. Svein Speight tók allar módelmyndir sem fylgja fréttinni. „
Skúli Mogensen bjallaði á mig nokkrum mánuðum áður en WOW fór í loftið og sagði mér að hann ætlaði að stofna eitt stykki flugfélag og að það ætti að vera öðruvísi og ferskara en þessi venjulegu flugfélög. Honum fannst mikilvægt að þetta væri allt saman mjög „cool“ og lagði upp með ákveðna stemningu og var með skýra sýn hvert hann vildi fara,“ segir fatahönnuðurinn og tónlistarmaðurinn Gunni Hilmarsson sem hannaði alla búninga flugfélagsins WOW. Gunni fer í gegnum sögu þeirra hér á Vísi en fall WOW hefur verið mikið í fjölmiðlum um heim allan síðustu daga. Flugfélagið heyrir nú sögunni til. Gunni segir að þó Skúli hafi vitað hvað hann vildi og hafi haft þessa skýru sýn hafi hann fengið frjálsar hendur með hönnunina. „Það varð strax mikill spenningur í kringum allt sem tengdist WOW og næstu mánuðir voru afar skemmtilegir. Ég ákvað að hafa það þannig að gera í raun litla línu í með mörgun stílum í stað að fókusera á eitt „look“. Síðan héldum við litla sýningu innanhúss og völdum svo það sem okkur fannst flottast. Hér eru myndir af fyrstu línunni. Myndir sem aldrei hafa sést áður og voru bara til að nota innanhúss. Allt yfirbragðið var 60’s stemning eða frá áratugnum þegar fólk fór að ferðast meira og flugið var umvafið miklum glamúr. Við lögðum áherslu á kvenlegar línur og WOW átti að ganga lengra en önnur flugfélög í þessu sem öðru. Strákarnir fylgdu sömu línu og voru svona í nettu „Mad men-útliti.““ Hér neðar má sjá fyrstu búningana sem Gunni Hilmars hannaði, búningar sem hafa aldrei áður sést.Kvenlegar línur var áherslan í fyrstu hönnun hjá Gunna.Fjólublái liturinn alltaf áberandi, eðlilega.Fyrsta línan var snyrtileg.Smekklegur búningur sem aldrei sást.„Hér er síðan hönnunin sem við völdum sem fyrsta búning. Tókst vel og vakti mikla athygli. Ferskt og öðruvísi,“ segir Gunni en hér neðar má sjá hvernig fyrsti búningurinn leit út.Fyrsti búningur WOW.„Það myndaðist strax mikil stemning fyrir WOW og freyjurnar vöktu gríðarlega athygli hvert sem þær fóru og fjólublái herinn varð þekktur í flugheiminum. Enda geggjað að sjá þær stormandi um flugvellina hressar, flottar og öðruvísi. Eftir fyrstu tvö árin þá vildum við Skúli halda áfram að halda öllu fersku og hugsa þetta sem tísku og stemningu og ekki sofna á verðinum. Svo við keyrðum strax á nýtt „uniform“. Ég hélt sama klút og bátahattinum sem hafði vakið mikla athygli og hannaði nýjan búning sem var í svipaðri 60´s-stemmingu og hinn en þó að mörgu leyti kynþokkafyllri en sá fyrsti. Hátt pils með skemmtilegum smáatriðum sem voru öðruvísi. Hér eru myndir sem notaðar voru í kynningunni og svo nokkrar svona frá „crewinu“ sem sýnir vel stemninguna sem var.“Búningurinn sem leit dagsins ljós eftir fyrstu tvö árin.„Þetta „uniform“ var notað í þrjú ár en þá var okkur Skúla farið að leiðast. WOW hafði þarna stækkað og dafnað og stöðnun var ekki það sem var í boði þarna hjá Skúla og WOW. Nú fannst mér komin tími á mikla breytingu fyrst við vorum að fara út í slíkt. Ég vildi hafa þessa búninga meira „sharp“, hreinni línur og allt útlit of yfirbragð stílhreinna. Gamli klúturinn og hattur var með yfirbragð liðinna tíma en nú var unnið frá öðrum hugmyndum nær nútímanum,“ segir Gunni. „Áfram var unnið með mjög kvenlegar línur, eiginlega gekk ég eins langt og hægt var þar. Hatturinn var mótaður, harður ullarhattur og klúturinn silki-crepe með skemmtilegum mótívum. Það var öllu breytt. Aftur var gerð heil lína sem var sýnd stórum hópi sem starfaði hjá WOW og svo var einfaldlega kosið um hvaða „uniform“ átti að nota. Við skiptum einnig um lit, gerðum hann enn bjartari fjólubláan. Flott form, glæsileiki, skarpar línur, ný efni og sterk heild var það sem skipti máli og ég vildi ná fram. Það hefði verið gaman að ná allavega einu í viðbót en svona fór um flugferð þá. Að vinna með og fyrir WOW var frábært. Einstök stemning, frábært fólk, kraftur og trú á verkefnið.“Síðasti búningurinn var bjartari.Gunni er mjög sáttur með síðustu línuna en hefði viljað fá tækifæri til að gera fleiri línur.
Einu sinni var... Tíska og hönnun WOW Air Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Menning Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Lífið samstarf Fleiri fréttir Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Spurning um The Terminator upp á tvö hundruð þúsund Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Best að geta elt draumana saman Skilaboðaskjóðan sýnd á Selfossi Laufey og Collab í eina sæng Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Truflað hádegisdjamm í nafni mannréttinda Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Salka Sól látin fara „Hvernig er hægt að deyja áður en maður fæðist?“ Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Jóhanna Vigdís greindist með MS „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Fréttatía vikunnar: Harmleikur, þorrablót og körfubolti „Sannkölluð rokk og ról goðsögn“ fallin frá „Valsreiturinn... í Pyongyang“ Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Sjá meira