Skoðun

Velkomin í okurland!

Helga Vala Helgadóttir skrifar
Þessa dagana er tekist á um það hvort laun þurfi að hækka eða ekki. Samtök atvinnurekenda, með dyggum stuðningi ríkisstjórnarflokkanna, hamra inn í umræðuna að launajöfnuður hafi aldrei verið meiri og laun hér á landi séu óvenjulega há. Að ef hækka eigi lægstu launin muni það kollvarpa hinum margumtalaða stöðugleika sem lág- og millitekjufólk ber víst ábyrgð á að haldist.

Það má vel vera að meðaltal launa sé ágætt en það breytir ekki þeirri staðreynd að lágu launin duga ekki fyrir framfærslu í okkar samfélagi. Við því verður að bregðast.

Á sama tíma og almenningi er talin trú um skaðsemi kjarabaráttu launþega fáum við fréttir af hinum raunverulega ógnvaldi. Það er nefnilega svo að það er 66% dýrara að reka heimili á Íslandi en í Evrópusambandinu! Það eru ekki bara innfluttar matartegundir sem eru dýrari hér á landi heldur er það meira að segja fiskurinn sem svamlar hér allt um kring sem er dýrari fyrir íslenska neytendur en þá sem kaupa í matinn í löndum Evrópu sem sum hver liggja ekki einu sinni að sjó. Matarkarfan er ekki bara óheyrilega dýr heldur er húsnæðiskostnaður með hæsta móti í krónulandi.

Í þessu dýra landi hafa stjórnvöld í ofanálag gert atlögu að þeim stoðum sem ætlað er að jafna byrðar; barnabætur skerðast undir meðallaunum og vaxtabótakerfið heyrir næstum sögunni til. Í miðri kjaradeilu leggur ríkisstjórnin svo til skerðingu framlaga ríkisins til sveitarfélaganna, sem bera hitann og þungann af nærþjónustu við aldraða, börn og fatlað fólk. Fyrirséð er að sveitarfélög munu neyðast til að hækka verðskrár og skerða þjónustu til að standa undir tekjumissinum. Er þetta ábyrg aðgerð í miðri kjaradeilu?

Ábyrgð valdhafa er mikil og ríkisstjórnin hefur fjöldamörg verkfæri til að auka jöfnuð og hagsæld meðal landsmanna. Nú verður hún að leggja málinu lið af einhverri alvöru til að tryggja öllum íbúum landsins mannsæmandi lífskjör. Það hlýtur jú að vera megintilgangur með störfum þeirra.


Tengdar fréttir

Mikilvægt skróp

Vitanlega eiga börn og unglingar skilið að mark sé á þeim tekið og á þau hlustað. Samt er iðulega reynt að þagga niður í þeim.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×