Faðir Sóla Hólm: „Hann er algjör aumingi í drykkju“
Talið berst meðal annars að skemmtanalífinu og hvort Sóli sé mikill djammari.
„Ég djamma aldrei og það er alls ekki út af því að ég á svo mikið af börnum. Ég er bara ömurlegur drykkjumaður,“ segir Sóli.
„Eins og pabbi hefur oft sagt, hann er algjör aumingi í drykkju. Ég er bara lélegur í þessu. Ég opna aldrei bjór heima hjá mér og drekk hann, aldrei. Ég drekk bara til að vera fullur með vinum mínum, mér finnst það gaman. Það er oftast bara við félagarnir saman og ég hef ekkert gaman af því að fara niður í bæ.“
Í þættinum ræðir hann einnig um upphaf ferilsins, bróður sinn Sigurð Sólmundarson, sem gengur undir nafninu Buddan eða Costco gaurinn, baráttuna við krabbameinið, nýja uppistandssýningu og um það hversu lélegur drykkjumaður hann er í raun og veru.
Hér að ofan má sjá sjötta þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi og Stöð 2 Maraþon.
Tengdar fréttir
Það jákvæða trompar það neikvæða
Með fullri virðingu fyrir öðrum áhrifavöldum hér á landi þá er Sunneva Einarsdóttir ein sú allra vinsælasta á Íslandi.
„Fékk sjálf mjög mikið út úr því að vita að ég er ekki sú eina“
Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna undanfarin ár og þá aðallega sem sjónvarpskokkur. Núna er Eva orðin dagskrágerðarmaður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2.
Kristbjörg hefur fórnað miklu fyrir mig
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gaf á dögunum út bókina Aron – Sagan mín. Þar fer hann ítarlega yfir ferilinn, uppvaxtarárin á Akureyri og lífið í heild sinni.
Valdimar lýsir matarfíkninni: „Þetta deyfir mann algjörlega og maður er hvorki glaður né leiður“
Valdimar Guðmundsson hefur í nokkur ár verið einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og þykir rödd hans hreinlega með ólíkindum.
Pabbi var mín besta forvörn
Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.
Brynjar sér ekki eftir lýtaaðgerðinni og hefði aldrei reynt að fela það
Þeir Aron Kristinn Jónasson og Brynjar Barkarson mynda saman sveitina ClubDub en hún sló rækilega í gegn síðasta sumar.
Páll Óskar ætlar alfarið að sniðganga Eurovision
"Ég fer í Eurovision þegar það kemur flott lag og ég hef ekki fengið inn lag sem kýlir mig kaldan,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er áttundi gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.