Áratugalöng átök um Kasmírsvæðið Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. mars 2019 09:00 Frá mótmælum gegn Indland í Karachi í Pakistan. Vísir/EPA
Í skugga hárra fjalla í Suður-Asíu liggur Kasmír. Fjalllent landsvæði sem telur nærri tuttugu milljónir íbúa. Héraðið þykir mikilvægt vegna orku og menningar og er það einnig hernaðarlega mikilvægt. En samkvæmt greiningu The Diplomat er helsta mikilvægi Kasmír það að úr jöklum svæðisins rennur ferskt vatn, lífsnauðsyn fyrir íbúa á þurrum svæðum í Pakistan og á Indlandi. Þess vegna hafa ríkin tvö tekist á um Kasmír allt frá því Indlandi var skipt upp, gróflega á milli hindúa og múslima, þegar breska heimsveldið lét landið af hendi. Fram að þeim tíma réð prins yfir ríkinu, sem kallaðist Jammu og Kasmír, og fékk hann að taka ákvörðun um hvort sameinast ætti öðru hvoru nýja ríkinu eða að lýsa yfir sjálfstæði.Áratugagömul átök Hari Singh, þá prins, var hindúi. Flestir íbúanna voru hins vegar múslimar. Þar af leiðandi ákvað hann að sameinast hvorugu ríkinu. Sú ákvörðun hélt ekki lengi en Pakistanar réðust inn í héraðið í október 1947. Singh bað Indverja um hjálp, flúði til Indlands og undirritaði samning um að ríkið skyldi verða hluti af Indlandi. Við tók fyrsta stríð Pakistana og Indverja um svæðið sem lauk árið 1949 en Pakistönum hafði þá tekist að vinna hluta Kasmír. Næsta stríð braust svo út árið 1965 og stóð yfir í um mánuð. Þúsundir létu lífið áður en Sameinuðu þjóðirnar komu á vopnahléi. Engin varanleg tilfærsla varð á hinum eiginlegu landamærum. Landamærin eru eiginleg en ekki opinber þar sem bæði ríki gera tilkall til svæðisins alls. Indland og Pakistan eiga sum sé ekki gott samband og er Kasmír eitt helsta deiluefnið. Á áttunda áratugnum, þegar margur óttaðist kjarnorkustríð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, hófu ríkin tvö kjarnorkukapphlaup. Indverjar sprengdu sína fyrstu kjarnorkusprengju í tilraunaskyni árið 1974 og Pakistanar stuttu síðar.Mannskæð stríð En vopnuðum átökum var hvergi nærri lokið. Árið 1984 brutust út átök um Siachen-jökulinn sem stóðu yfir þangað til 2003. Þúsund létust í orrustum áður en vopnahléi var komið á. Það vopnahlé er enn í gildi í dag þótt gegn því hafi margoft verið brotið undanfarin fimmtán ár. Á sama tíma og átök geisuðu um Siachen fóru aðskilnaðarhreyfingar og hryðjuverkasamtök, meðal annars al-Kaída, að gera vart við sig í indverska Kasmír. Þau átök hófust 1989 og standa yfir enn í dag. Á þriðja tug þúsunda hafa dáið. Árið 1999 ákváðu Pakistanar, í skugga átaka Indverja við skæruliða, að innlima Kargil í indverska Kasmír. Indverjar náðu svæðinu aftur eftir tveggja mánaða stríð sem kostaði nærri 2.000 manns lífið.Mikil spenna hefur ríkt í samskiptum Indlands og Pakistans undanfarna daga vegna Kasmír.Vísir/EPAStympingar og óeirðir Indverjar og Pakistanar hafa sömuleiðis háð orrustur um Kasmír á síðustu árum. Árin 2014 og 2015 voru ítrekaðar stympingar við hin eiginlegu landamæri og féllu á annað hundrað. Óeirðir brutust svo út í indverska Kasmír í júlí 2016 og stóðu yfir fram í febrúar vegna hernaðarvæðingar og andláts Mujahideen-liðans Burhan Wani í skotbardaga við indverska hermenn. Fimm her- og lögreglumenn féllu og að minnsta kosti 120 almennir borgarar. Eins og staðan er í dag halda Indverjar 45 prósentum svæðisins og kalla ríki sitt þar Jammu og Kasmír. Pakistanar halda 35 prósentum sem þeir kalla Azad Kasmír, Gilgit og Baltistan. Kínverjar eiga líka hlut að máli og halda tuttugu prósentum í héraði sem þeir kalla Aksai Chin. Togstreitan magnast Undanfarnar tvær vikur hefur togstreitan á milli kjarnorkuveldanna tveggja aukist gríðarlega, eða allt frá því að liðsmaður hryðjuverkasamtakanna Jaish-e-Mohammed (JeM), drap fjörutíu indverska hermenn í Pulwama í indverska Kasmír. Indverjar kenna Pakistönum að hluta um árásina. Segja að þeir ættu að hafa upprætt starfsemi JeM, sem eru starfrækt í Pakistan, fyrir löngu. Síðan þá hafa Indverjar sagst hafa gert loftárás á þjálfunarbúðir JeM, hermenn hafa skotið hvorir á aðra á hinum eiginlegu landamærum í Kasmír og Pakistanar sagst hafa gert loftárásir á indverska hluta Kasmír auk þess að þeir hafi grandað tveimur indverskum herflugvélum og handtekið flugmann. Ákveðinn rauður þráður í þessu orðaskaki er að annað ríkið fullyrðir eitthvað um árás sem hitt ríkið segir svo að séu ósannindi. Pakistanar sögðu Indverja ekki hafa fellt neina í þjálfunarbúðaárásinni, Indverjar segja Pakistana hafa verið hrakta á brott áður en þeir náðu að gera loftárás og segja þá hafa skotið niður eina flugvél en ekki tvær.Óljós framtíð En þrátt fyrir að Imran Khan, forsætisráðherra Pakistans, hafi leyst flugmanninn úr haldi í gær segjast herforingjar beggja ríkja enn í viðbragðsstöðu og staðan er enn svört. Pakistanar halda því fram að Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sé að reyna að stofna til átaka svo hann haldi sæti sínu eftir kosningar í vor. Þá ríkir einnig óánægja með Modi og flokk hans, BJP, í heimalandinu. Að minnsta kosti á meðal stjórnarandstöðunnar, sem sakar Modi um að „stjórnmálavæða fórnir hermanna“. Abhinandan Varthaman, herflugmaðurinn sem Pakistanar handtóku, kom til Indlands í gær og sagðist himinlifandi með þá góðu meðferð sem hann fékk í Pakistan. Narendra Modi nýtti tækifærið og sagði að atburðir undanfarinna daga hefðu þjappað þjóðinni saman. Mikil óvissa er um næstu skref en Bretar, Bandaríkjamenn, Kínverjar, ESB og fleiri hafa hvatt til friðar og viðræðna í stað átaka.
Birtist í Fréttablaðinu Indland Pakistan Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira