Talin hafa falið lík systur sinnar í frystikistu í átján ár Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2019 23:09 Konan er talin hafa banað systur sinni árið 2000 eða 2001 og komið líkinu fyrir í frystikistu í kjallara hússins. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty
Lögregla í Króatíu hefur handtekið 45 ára konu sem grunuð er um að hafa myrt systur sína í kringum aldamót og falið lík hennar í frystikistu í um átján ár.AFP greinir frá því að Jasmina Dominic hafi horfið sporlaust árið 2000 en hún hafi lík hennar fundist í frystikistu. Saksóknarar í Króatíu segja að systir Jasminu hafi verið handtekin í bænum Mala Subotica í norðurhluta landsins um síðustu helgi. Konan er talin hafa banað systur sinni árið 2000 eða 2001 og komið líkinu fyrir í frystikistu í kjallara hússins. „Við teljum að líkið sem fannst í frystikistunni sé af konu sem fæddist 1977 og var tilkynnt að væri saknað í ágúst 2005,“ segir Nenad Risak, talsmaður lögreglunnar í samtali við AFP. Hin handtekna bjó í húsinu ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum þeirra. Jasmina Dominic var 23 ára þegar síðast sást til hennar árið 2000. Króatíska blaðið Vecernji List segir að fjölskylda hennar hafi fyrst tilkynnt hvarfið til lögreglu fimm árum síðar. Jasmina stundaði nám í höfuðborginni Zagreb þegar hún hvarf. Faðir systranna á áður að hafa greint frá því að hann hafi fengið boð um að Jasmina hafi fengið starf á skemmtiferðaskipi.
Króatía Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira