Lífið

Ellen fann mann sem vill ekki vera í sjónvarpinu og setti hann í sjónvarpið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Huck ekki hrifinn af athyglinni.
Huck ekki hrifinn af athyglinni.
Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres tekur oft upp á því að koma fólki á óvart og sýna það í þætti sínum.

Ellen varð 61 árs á dögunum og fagnaði því með sérstökum afmælisþætti sem var heldur betur vel heppnaður.

Eitt af því sem Ellen gerði til að fagna afmæli sínu var að finna einstakling sem vill alls ekki vera á skjánum.

Sá maður heitir Huck og er starfsmaður hjá Ellen sem er vanalega í myndstjórn að stjórna upptöku.

Huck var ekkert sérstaklega hrifinn af því þegar myndatökumaðurinn birtist inni í myndstjórn og Ellen fékk að ræða við hann eins og sjá má hér að neðan.

  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.