Síminn sem næstum allir áttu við upphaf aldarinnar sagður væntanlegur aftur Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. janúar 2019 11:06 Paris Hilton sést hér munda Motorola Razr-síma sinn, bleikan að lit, á kynningarviðburði í Japan. Getty/Jun Sato
Orðrómur um endurútgáfu hins fornfræga Motorola Razr, sem var vinsælasti farsími í heimi þangað til iPhone-inn velti honum úr sessi, hefur nú komist á kreik. Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal greinir frá því að tæknifyrirtækin Lenovo og Verizon hyggist koma nýrri og endurbættri útgáfu símans á markað innan skamms. Wall Street Journal hefur eftir heimildarmönnum sínum að nýi Razr-síminn verði snjallsími með tilheyrandi snertiskjá en þó verði haldið í „samþjappanlegar“ ræturnar. Þannig mun vera hægt að leggja símann saman upp á gamla mátann með hjálp nýjustu tækni. Þá er því haldið fram að síminn verði fáanlegur strax í næsta mánuði og þurfa áhugasamir að reiða fram 1500 Bandaríkjadali, eða um 180 þúsund íslenskra króna, fyrir gripinn. Razr-síminn, sem þótti örþunnur á þáverandi mælikvarða, kom fyrst á markað árið 2004 og varð fljótt vinsælasti farsími í heimi. Það breyttist hins vegar með tilkomu iPhone-símans árið 2007 og við tóku erfiðir tímar hjá Motorola. Google keypti fyrirtækið árið 2011 en seldi Lenovo svo símahluta starfseminnar þremur árum síðar. Verizon vildi ekki tjá sig um orðróminn í samtali við Wall Street Journal og þá hefur ekkert heyrst frá Lenovo um málið. Hér að neðan má sjá myndband af unglingum, sem margir eru litlu eldri en upphaflegi Razr-síminn, spreyta sig á símanum og öðrum sambærilegum tegundum.
Tækni Tengdar fréttir Fyrsta tap Motorola í fjögur ár Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola, annað stærsta farsímafyrirtæki í heimi, skilaði tapi upp á 181 milljón bandaríkjadala, 11,8 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Fyrirtækið hefur ekki skilað taprekstri í fjögur ár en hann er að mestu tilkominn vegna verðlækkana og sölu á ódýrum farsímum. Greinendur gera ráð fyrir áframhaldandi samdrætti á yfirstandandi fjórðungi. 18. apríl 2007 12:45 Apple mokar út iPhone á kostnað Motorola Apple fyrirtækið skiaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi og geta Steve Jobs og félagar þakkað það gríðarlegum vinsældum iPhone símans. Fyrstu þrjá mánuði ársins seldust 1,7 milljónir síma sem er greinilega að bitna illa á Motorola einum helsta keppinaut Apple á símamarkaði, en sala á Motorola farsímum dróst saman um 40 prósent á sama tíma. 24. apríl 2008 21:14 Mest lesið „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Viðskipti innlent Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Viðskipti innlent Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Viðskipti innlent Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Viðskipti innlent Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Viðskipti innlent Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Viðskipti erlent Heiðrún Lind kaupir í Sýn Viðskipti innlent Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Viðskipti innlent Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira
Fyrsta tap Motorola í fjögur ár Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola, annað stærsta farsímafyrirtæki í heimi, skilaði tapi upp á 181 milljón bandaríkjadala, 11,8 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Fyrirtækið hefur ekki skilað taprekstri í fjögur ár en hann er að mestu tilkominn vegna verðlækkana og sölu á ódýrum farsímum. Greinendur gera ráð fyrir áframhaldandi samdrætti á yfirstandandi fjórðungi. 18. apríl 2007 12:45
Apple mokar út iPhone á kostnað Motorola Apple fyrirtækið skiaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi og geta Steve Jobs og félagar þakkað það gríðarlegum vinsældum iPhone símans. Fyrstu þrjá mánuði ársins seldust 1,7 milljónir síma sem er greinilega að bitna illa á Motorola einum helsta keppinaut Apple á símamarkaði, en sala á Motorola farsímum dróst saman um 40 prósent á sama tíma. 24. apríl 2008 21:14