Veiði

Nýtt nám í veiðileiðsögn

Karl Lúðvíksson skrifar
Nú í vor mun Ferðamálaskóli Íslands bjóða upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins.

Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn.  Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.

  • Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu. 

  • Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum.

  • Farið verður í tveggja  daga ferð í Ytri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum.

  • Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn.

  • Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum.

  • Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.

  • Námið er alls 70 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Ytri Rangár.

Leiðbeinendur eru:

Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir

Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur – Laxfiskar

Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá

Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur  –

Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga

Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá.

Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður

Kristinn Helgason, Landsbjörg

Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn

Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða fs@menntun.is  

 






×