Chelsea endaði á jafntefli │Arnór Ingvi og félagar áfram eftir frækinn sigur í Tyrklandi Anton Ingi Leifsson skrifar 13. desember 2018 19:45 Arnór Ingvi í leiknum í kvöld. vísir/getty Chelsea fer í gegnum L-riðill Evrópudeildarinnar án þess að tapa eftir að enska liðið gerði 2-2 jafnefli við Vidi á útivelli í kvöld. Willian kom Chelsea yfir eftir hálftíma leik en tveimur mínútum síðar jafnaði Ethan Ampadu metin fyrir Vidi með sjálfsmarki. 1-1 í hálfleik. Heimamenn komust yfir á 56. mínútu með marki Loic Nego en franski framherjinn Oliver Giroud tryggði Chelsea stig með marki stundarfjórðungi fyrir leikslok. Chelsea endar riðilinn með fimm sigra og eitt jafntefli og endar því á toppi riðilsins með sextán stig. Bate fylgir þeim áfram eftir 3-1 sigur á PAOK í hinum leik riðilsins. Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö eru komnir í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir frækinn 1-0 sigur á Besiktas í I-riðlinum. Eina mark leiksins skoraði Svíinn Marcus Antonsson í upphafi síðari hálfleiks en Arnór Ingvi var tekinn af velli stundarfjórðungi fyrir leikslok. Jón Guðni Fjóluson var í vörn Krasnodar sem tapaði 3-0 fyrir Sevilla á útivelli. Wissam Ben Yedder gerði tvö mörk og Ever Banega eitt. Krasnodar og Sevilla fara áfram eftir að Standard og Akhisarspor gerðu markalaust jafntefli í hinum leik riðilsins. Lærisveinar Steven Gerrard eru úr leik eftir 1-0 tap gegn Rapid Wien á útivelli í úrslitaleik um sæti í 32-liða úrslitunum. Sigurmarkið kom sex mínútum fyrir leikslok og Rangers úr leik.Öll úrslit kvöldsins:G-riðill: Rapid Vín - Rangers 1-0 Villareal - Spartak Moskva 2-0H-riðill: Lazio - Eintrach Frankfurt 1-2 Marseille - Apollon Limassol 1-3I-riðill: Besiktas - Malmö 0-1 Genk - Sarpsborg 4-0J-riðill: Akhisarspor - Standard Liege 0-0 Sevilla - Krasnodar 3-0K-riðill: Dynamo Kyiv - Jablonec 0-1 Rennes - Astana 2-0L-riðill: PAOK - Bate 1-3 Vidi - Chelsea 2-2 Evrópudeild UEFA