Kraumslistinn 2018 birtur Stefán Árni Pálsson skrifar 3. desember 2018 16:30 Cyber sem voru meðal þeirra sex listamanna og hljómsveita sem hlutu Kraumsverðlaunin 2017 og eru tilnefndar að nýju til verðlaunanna í ár.
Nú hefur verið tilkynnt um tilnefningar til Kraumsverðlaunanna með birtingu Kraumslistans 2018 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kraumi. Þetta er í ellefta sinn sem Kraumur tónlistarsjóður Aurora Foundation birtir Kraumslistann yfir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstafsemi varðar, enda fór dómnefndin í gegnum 343 íslenskar plötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sit. Dómnefndin mun nú velja þær sex breiðskífur af Kraumslistanum sem hljóta munu Kraumsverðlaunin 2018. KRAUMSLISTINN 2018Andi - Allt í einuasdfhg.. - Örvæntið ekkiAuður - AfsakaniraYia - aYiabagdad brothers - JÆJA.Birnir - MatadorBRÍET - 22.03.99 Cyber (Unofficial: CYBER) - BIZNESSElli Grill - Pottþétt 2018GDRN - Hvað ef GYDA (Gyda Valtysdottir) - EvolutionHekla - Á Íbbagoggur (Héðinn Finnsson) - Le quatuor diabolique inexistant: trois pièces sinistres d'ÍbbagoggurJohnny Blaze & Hakki Brakes - Vroom Vroom VroomJónbjörn - IsmsKælan Mikla - Nótt eftir NóttNordic Affect – He(a)rRagga Holm - BipolarROHT - Iðnsamfélagið og framtíð þessSideproject - isis emojiSigrún - Onælan Kraumsverðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Allar útgáfur íslenskra listamanna eru gjaldgengar til verðlaunanna – hvort sem þær koma út á geisladisk, vínyl eða á netinu. Kraumsverðlaunin voru fyrst veitt árið 2008 og hefur verið úthlutað árlega síðan. Alls hafa 51 hljómsveitir og listamenn hlotið verðlaunin, á meðan tæplega tvö hundruð listamenn og hljómsveitir hafa verið tilnefnd til þeirra með því að komast á Kraumslistann.DÓMNEFND Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af tólf manna dómnefnd sem skipuð er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Birna María Másdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Sandra Barilli, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.
Tónlist Mest lesið Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Lífið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Lífið Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Lífið Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Lífið Festist í lyftu í New York Lífið Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Lífið Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Lífið Fleiri fréttir Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira