Tónlist

Sjáðu FM Belfast gera allt vitlaust á Kaffibarnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakalegt gigg hjá FM Belfast.
Svakalegt gigg hjá FM Belfast.
Hljómsveitin FM Belfast stóð fyrir tónleikum á Kaffibarnum á sunnudagskvöldið og fóru þeir fram á neðri hæð staðarins.

Það má með sanni segja að meðlimir FM Belfast hafi einfaldlega rifið þakið á húsinu og var stemmningin með hreinum ólíkindum.

Sveitin hefur sett tónleikana í heild sinni á Facebook-síðu sína en þeir voru í beinni útsendingu þar á sunnudagskvöldið. FM Belfast stendur fyrir tónleikum á Hard Rock 14. desember og má finna miðasöluna hér.

Gæðin ekki upp á tíu en gæði tónleikanna mikil en þeir hefjast þegar um sautján mínútur eru liðnar af myndbandinu hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×