Raftvíeyki sem varð til við fæðingu Stefán Þór Hjartarson skrifar 17. nóvember 2018 12:00 Þeir Alfreð Drexler og Lord Pusswhip hafa þekkst bókstaflega síðan við fæðingu. Þeir eru saman í hljómsveitinni Psychoplasmics sem gefur út samnefnda plötu á mánudaginn. Um er að ræða sækadelískt ferðalag um tónlistarstefnur.
Dúóið Psychoplasmics sendir frá sér sína fyrstu plötu á mánudaginn næstkomandi. Það eru þeir Þórður Ingi Jónsson og Alfreð Jóhann Eiríksson sem skipa þetta raftvíeyki en þeir eru kannski betur þekktir sem Lord Pusswhip og Alfreð Drexler. „Þetta er hliðarverkefni hjá mér og Alfreð Jóhanni Eiríkssyni sem er minn besti kumpáni – við erum „day ones“: við vorum á sömu fæðingardeild, með sömu fóstru og allt það, þannig að við höfum verið að gera hluti saman frá fyrsta degi, bókstaflega. Árið 2015 gáfum við út myndband og lag, 101 Reykjavík, sem var algjört „sleeper hit“. Það eru ekki allir sem kannast við það, en þeir sem vita, vita,“ segir Þórður. Þeir fengu góð viðbrögð við því lagi og sérstaklega myndbandinu sem var í gamaldags VHS-stíl sem nú tæpum fjórum árum síðar er mikið notaður í myndbandsgerð. Þeir voru báðir staddir í Berlín stuttu síðar þar sem þeir ákváðu að setja saman heila plötu undir Psychoplasmics-nafninu. Þórður neitar því ekki að platan sé meðal annars undir sterkum áhrifum klúbbamenningar Berlínarborgar þar sem þeir báðir bjuggu á því tæpa tveggja ára tímabili sem platan var í vinnslu. Um ástríðuverkefni er að ræða að sögn Þórðar en þeir eru báðir sóló-tónlistarmenn sem hafa mest verið að setja saman takta hvor í sínu horni. Lord Pusswhip gaf nú síðast út EP-plötuna The Hand of Glory frá danstónlistar-plötuútgáfunni bbbbbb þar sem Bjarki, hinn margrómaði íslenski raftónlistarmaður, heldur um stjórnartaumana. „Þó að tónlistin sé ekkert svo langt frá tónlistinni sem við erum að gera sjálfir sóló þá er pælingin með Psychoplasmics sú að blanda saman elektrónískum og „organic“ hljóðum. Alli var að koma meira með píanó, gítar og önnur hljóðfæri á móti raf-elementum frá mér.“Psychoplasmics er ástríðuverkefni Alfreðs og Þórðar. Mynd/Magnús AndersenPlötuna má kalla hrærigraut alls kyns strauma og stefna – þarna ægir saman þungu nýbylgjurappi, danstónlist og sýrukenndum hljómum. „Platan er eins og ferðalag í gegnum mismunandi undirstefnur raftónlistarinnar og rappsins – hún fer ansi víða.“ Það eru vafalaust gleðifréttir fyrir aðdáendur fyrsta smells Psychoplasmics að ekki bara er á plötunni framhald af laginu, 107 RVK, heldur er á leiðinni myndband við það sem heldur áfram þar sem hitt kláraðist – með dauða Alfreðs. „Þegar við vorum að gera myndbandið við 101 Reykjavík þá var ég hér heima og Alfreð úti í Bretlandi þannig að á meðan við vorum að gera myndbandið var pælingin „hvernig eigum við eiginlega að koma Alla í myndbandið?“ – það var leyst þannig að í lok myndbandsins kom dánartilkynning sem er dagsett árið 2074, Alli er sem sagt dáinn árið 2074. 107 RVK byrjar þar sem fyrra myndbandið endar og við fáum að sjá hvað Alfreð var að bralla árið 2074.“ Þórður segir að plötufyrirtæki hafi sýnt plötunni áhuga en vegna þess hve lengi þeir hafi verið að setja hana saman hafi þeir ekki viljað bíða neitt frekar með útgáfuna og því gefið stykkið út sjálfir. „Við erum strax komnir með efni í plötu númer tvö sem við ætlum að reyna að fá útgefna hjá einhverju góðu plötufyrirtæki. Annars erum við farnir að spila plötuna á tónleikum og ætlum að fara að gera meira af því á næstunni.“stefanthor@frettabladid.is
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira