Miklar breytingar á miðju Stjörnuliðsins | Fyrirliðinn líka á förum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2018 11:00 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fagnar einum af sjö stóru titlum sínum með Stjörnunni. Vísir/Eyþór
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Lára Kristín Pedersen hafa báðar spilað lykilhlutverk á miðju Stjörnunnar í Pepsi deild kvenna í fótbolta undanfarin ár en svo verður ekki lengur. Þær eru núna báðar á förum frá félaginu. Lára Kristín Pedersen hafði áður fengið sig lausa frá Garðabæjarfélaginu og Ásgerður Stefanía staðfestir það í viðtali við Morgunblaðið að hún sé einnig á förum frá félaginu. Kristján Guðmundsson tók við liði Stjörnunnar á dögunum af Ólafi Þór Guðbjörnssyni og hann þarf nú að setja saman nýja miðju í Garðabænum. Lára Kristín var kosin besti leikmaður Stjörnunnar á nýloknu tímabili en tilkynnti á dögunum að hún hefði rift samningi sínum við Stjörnuna. Ásgerður Stefanía kom til baka í sumar eftir barnsburðarleyfi sumarið 2017. Ásgerður Stefanía hefur verið fyrirliði Stjörnunnar þegar hún hefur spilað undanfarin sex tímabil en samningur hennar rann út í október. Ásgerður segist hafa ákveðið að semja ekki aftur við Stjörnuna en hún hefur spilað með Garðarbæjarfélaginu frá 2005. „Ég get allavega lofað þér því að ég er ekki að fara að leggja skóna á hilluna,“ sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir í viðtali við Morgunblaðið. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur alls leikið 218 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild og varð leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins í sumar. Ásgerður sló þá met Auðar Skúladóttur. Nú er bara stóra spurningin hvar þær Ásgerður Stefanía og Lára Kristín spila næsta sumar.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik Sjá meira