Sú ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að hækka meginvexti Seðlabankans um 0,25 prósentur í 4,5% vakti mjög hörð viðbrögð hjá forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar gær.
„Við megum ekki gleyma því að raunvextir eru núna í sögulegu samhengi, sérstaklega langtímavextirnir, enn lágir á Íslandi. Hæpið er hins vegar að tæplega 1% raunvextir dugi til í þjóðarbúi sem er við fulla atvinnu og rúmlega það, verðbólga er þegar yfir markmiði en á leiðinni upp, spenna er enn til staðar og hagvöxtur er að nálgast jafnvægisvöxt en ofan frá,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri í ræðu á peningamálafundi Viðskiptaráðs Íslands í morgun.
Seðlabankinn kannar reglulega væntingar svokallaðra markaðsaðila til verðbólgu. Hér er í raun um að ræða starfsfólk fjármálafyrirtækja en þátttakendur eru rekstrarfélög, greiningardeildir, lífeyrissjóðir, verðbréfamiðlanir og eignastýringarfyrirtæki.
„Ekki er hægt að segja að vaxtahækkunin hafi komið markaðsaðilum á óvart. Samkvæmt könnun á væntingum markaðsaðila sem Seðlabankinn birti á mánudaginn þá bjuggust þeir flestir við því að vextir yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur fyrir áramót,“ sagði Már.
Greint var frá niðurstöðum könnunarinnar á vef Seðlabankans á mánudag, daginn áður en peningastefnunefnd tók ákvörðun um vextina. Miðað við miðgildi svara í könnuninni bjuggust markaðsaðilar við að meginvextir Seðlabankans myndu hækka um 0,25 prósentur í 4,5%.