Innlent

Einbýlishús alelda á Selfossi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá vettvangi á Selfossi í dag. Mikinn reyk leggur frá húsinu.
Frá vettvangi á Selfossi í dag. Mikinn reyk leggur frá húsinu. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan 16 í dag vegna mikils elds sem kviknaði í einbýlishúsi við Kirkjuveg á Selfossi. Lögregla á Suðurlandi segir að húsráðandi og gestkomandi kona séu í haldi lögreglu vegna rannsóknar á eldsupptökum. Grunur er um að karl og kona hafi verið á efri hæð hússins þegar eldurinn kom upp. Þeirra er nú leitað. 

Jóhann K. Jóhannsson, fréttamaður Stöðvar 2, flytur fréttir af vettvangi í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 18:30. Sjá hér.

Viðbragðsaðilar frá Selfossi og Hveragerði hafa verið að athafna sig á vettvangi en húsið var alelda þegar slökkviliðsmenn mættu á staðinn um fjögur í dag.

Reykkafarar hafa átt erfitt með að athafna sig sökum hita, auk þess að litlar sprengingar hafa orðið, að því er fram kemur í máli Péturs Péturssonar slökkviliðsstjóra.

Lögreglan á Suðurlandi hefur beðið vegfarendur að halda sig frá vettvangi til að trufla ekki störf viðbragðsaðila. Nágrannar eru beðnir um að loka gluggum hjá sér til að varna þess að fá eitraðar gufur inn í hús. Fólk er beðið að leita til Heilbrigðisstofnanna ef það finnur fyrir öndunaróþægindum og leita til tryggingarfélaga ef það telur húsnæði sitt hafa orðið fyrir reykskemmdum.

Pétur segir að búið sé að slökkva eldinn að mestu og hefur verið notast er körfubíla við slökkvistarf til að koma í veg fyrir að agnir dreifist úr þaki hússins, en mögulegt er að það finnist asbest þó að það sé ekki vitað með vissu.

Pétur segir enn fremur að reykköfurum hafi reynst erfitt að athafna sig á efri hæð hússins, þar sem talið er að gólfið gæti hrunið.

Fréttin var uppfærð klukkan 18:35.







Vísir/Magnús Hlynur
Vísir/Magnús Hlynur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×